Maðurinn fannst látinn
Svæðið þar sem leitað var að fólkinu. www.mats.is
Maðurinn sem fannst um kl. 21.30 við Bláfjallakvísl var látinn þegar að honum var komið. Hann fannst í um 4-5 km fjarlægð suður af bíl sínum, sem fannst síðdegis í Hvanngili við Stórusúlur. Maðurinn var fæddur árið 1955.
Um 280 björgunarsveitamenn úr 28 sveitum tóku þátt í leitinni í kvöld.
Leitarsvæðið afmarkaðist af Mýrdalsjökli, Markarfljóti og Mælifellssandi og voru leitarskilyrði ágæt fyrir vélsleða og skíðamenn þar sem snjór var yfir öllu. Meðan á leitinni stóð gekk á með kröppum éljum en á milli var bjart og leitaraðstæður þokkalegar, að sögn Slysavarnafélagsins Landsbjargar.
Fóru að gosstöðvunum á Páskadag
Karlmaðurinn fór ásamt tveimur konum að gosstöðvunum á Páskadag. Talið er að á heimleið hafi þau villst af leið. Snemma aðfaranótt mánudags hafði maðurinn samband við lögregluna á Hvolsvelli. Hann var ásamt konunum um borð í jeppling og að því hann taldi kominn á aurana innan við Tröllagjá, sem er innan við Gilsá og á leiðinni að Einhyrningi.
Þá gerðu lögregla og björgunarsveitir fimm tíma árangurslausa leit á svæðinu. Ökumaðurinn var þó í næstum stöðugu símasambandi við lögreglu. Um klukkan 6.30 í gærmorgun hringdi ökumaðurinn svo í lögregluna og afþakkaði aðstoð. Hann kvaðst þá búinn að losa bíl sinn og vera kominn á slóða.
Þegar ættingjar fólksins fóru að grennslast fyrir um það um klukkan tvö síðastliðna nótt hófst leit að nýju. Þyrla Landhelgisgæslunnar var notuð til leitar úr lofti og björgunarsveitir á bílum og snjósleðum leituðu á jörðu niðri.
Um miðjan dag fannst kona á gangi við Emstruleið, ofan við Einhyrning. Konan sem fædd er árið 1977 var köld og hrakin en annars við góða heilsu. Hún var færð um borð í þyrlu Gæslunnar og flogið með hana til Reykjavíkur. Síðdegis fannst svo bíll fólksins bensínlaus og mannlaus í Hvanngili við Stórusúlur. Þar skammt frá fannst einnig hin konan látin. Hún var fædd árið 1967.
Leit hélt eftir þetta áfram og bættust fleiri björgunarsveitamenn í hóp hinna. Um kl. 21.30. fannst svo maðurinn, eða 4-5 km suður af bílnum. Hann var einnig látinn.
Ekki er unnt að greina frá nafni hinna látnu að svo stöddu.
Innlent »
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 7. apríl 2010, Innlent Tvö fundust látin
- Sunnudagur, 20. mars 2011, Innlent Hafnaði boði um að segja af sér
- Þriðjudagur, 6. apríl 2010, Innlent Maðurinn er fundinn
- Þriðjudagur, 6. apríl 2010, Innlent Önnur konan fannst látin
- Mánudagur, 23. nóvember 2009, Innlent Íslendings saknað í Noregi
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































