„Eins og rjómi á tertu“
Eftir Jón Pétur Jónsson„Það eru ansi góðar hrinur núna,“ segir Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur í samtali við mbl.is, en hann er nú staddur á Fimmvörðuhálsi ásamt tökuliði og þáttastjórnendum breska bílaþáttarins Top Gear. Hann segir litlar breytingar hafa orðið á gosstöðvunum, þrátt fyrir snarpan skjálfta í gær.
Haraldur segir að hópurinn hafi lent í aftakaveðri á svæðinu í nótt. „Það tók okkur 10 tíma að koma frá Sólheimum og upp á Fimmvörðuháls. Að keyra yfir Mýrdalsjökul með sex trukka, tvo snjóbíla og fjölda manns. Það var mjög erfitt. Nú er þetta eins og best getur verið. Glampandi sólskin, blíða og gos,“ segir Haraldur.
Menn hafi verið komnir í skálann klukkan 4 í nótt og svo hafi verið lagt aftur af stað klukkan sjö. Þeir Top Gear félagar muni taka myndir á svæðinu í dag og svo verði snúið aftur til byggða á morgun.
Dregist saman í einn gíg
Jarðskjálfti, sem mældist 3,7 á Richter, mældist beint undir Eyjafjallajökli í gær. Er þetta mesti skjálfti sem hefur mælst á svæðinu frá því skjálftahrinan hófst í marsbyrjun. Að sögn Haraldar er ekki að sjá að skjálftinn hafi breytt miklu. Hann fylgist vel með óróanum og segir að ekki hafi orðið mikil breyting þar á. Fáir skjálftar mælist öðru hvoru.
Haraldur segir að „gömlu“ gígarnir séu nú dauðir. „Það hefur myndast mikið og fallegt gulgrænt lag af brennisteini á toppnum á þeim. Eins og rjómi á tertu. Svona grænt - alveg sérstakt.“ Hann segir að gosið hafi dregist saman í einn gíg sem sé mjög virkur. „Hraun rennur niður í áttina að Þórsmörk,“ bætir hann við.
Haraldur telur að litlar breytingar muni verða á gosinu á næstunni, en hann tekur það þó fram að nú séu menn aðeins með ágiskanir.
Mikil flugumferð er á svæðinu að sögn Haraldar og þá fer ferðamönnum fjölgandi.
Haraldur hefur verið duglegur að blogga um gosið, en blogg Haraldar má lesa hér.
Innlent »
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 9. apríl 2010, Innlent Hættur leynast við hraunbrún
- Fimmtudagur, 8. apríl 2010, Innlent Top Gear ók upp á heitt hraun
- Sunnudagur, 11. apríl 2010, Innlent Eldgosinu að ljúka?
- Mánudagur, 5. apríl 2010, Innlent Top Gear hyggst skoða eldgosið
- Fimmtudagur, 8. apríl 2010, Innlent Tilgangurinn að sýna fram á hættuna
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“





































