Friðrik í fyrsta sæti Þinglistans

Friðrik Sigurðsson
Friðrik Sigurðsson Hafþór Hreiðarsson

Þinglistinn, framboð óháðra í Norðurþingi hefur lagt fram framboðslista sinn eftir að listinn var samþykktur á fundi Þinglistans í dag.

Fyrsta sæti listans skipar Friðrik Sigurðsson, bóksali og sveitastjórnarfulltrúi. Í öðru sæti er Sigríður Valdimarsdóttir húsmóðir og í því þriðja Áki Hauksson rafvirki. 

4.-8. sæti skipa síðan, í þeirri röð sem nöfnin eru birt, þau: Stefanía V. Gísladóttir, Sigurður Yngvason, Arna Þórarinsdóttir, Oddur Örvar Magnússon og Anna Soffía Halldórsdóttir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert