Gosvirkni stöðug við Fimmvörðuháls
Gosvirkni við Fimmvörðuháls hefur haldist óbreytt í dag að sögn Ármanns Höskuldssonar eldfjallafræðings sem staddur var við gosstöðina nú undir kvöld.
Enn er virkni í sprungunni vestan við fyrsta gíginn og ekkert farið að draga úr. „Það rennur heilmikið hraun úr henni ofan í Hvannárgil og við erum búin að vera að skemmta okkur við að horfa á flakkara eins og þeir voru kallaðir í Vestmannaeyjum,“ segir Ármann. Með því eigi hann við gígbarma sem hlaðast upp og sem hraunið ýtir síðan á þannig að þeir sigla áfram með hrauninu niður í gil.
„Það er búið að vera lærdómsríkt að fylgjast með þessu“, segir Ármann en kveður hins vegar dautt í gamla gígnum.
Lítið hefur verið um fólk á gosslóðum í dag, enda svartaþoka á jöklinum og skyggni lélegt auk þess sem gengið hefur á með éljum.
Að sögn Benedikts Bragasonar, leiðsögumanns hjá Arcanum ferðaþjónustu, hefur því lítið verið um ferðir upp á jökulinn og fyrsta og eina ferð dagsins raunar ekki farin fyrr en núna undir kvöld.
„Það var þoka og hálfgert leiðindaveður á jöklinum í dag og færðin var þung á Mýrdalsjökli. Þá var líka þoka inni á Fimmvörðuhálsi þannig að við hættum bara við. Enda höfum við ekkert að sýna ef við sjáum ekki eldfjallið.“ Fyrir skemmstu hafi hins vegar birt til og þá hafi verið ákveðið að fara með fólk sem ekki hafi gefist upp á að bíða eftir góðu færi. „Það var fínt inn við fjall núna rétt áðan,“ segir Benedikt.
Innlent »
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 20. mars 2011, Innlent Hafnaði boði um að segja af sér
- Miðvikudagur, 31. mars 2010, Innlent Ný sprunga hefur opnast
- Mánudagur, 22. mars 2010, Innlent Tilkomumikið og stórfenglegt
- Fimmtudagur, 1. apríl 2010, Innlent Nýr gígur á hálsinum
- Laugardagur, 10. júlí 2010, Innlent Rólegt yfir Eyjafjallajökli
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































