Hvalveiðar verði aðeins fyrir heimamarkaði
Hvalveiðiskip Hvals. mbl.is/ÞÖK
Bandaríkjastjórn ítrekar í skjali, sem birt er á heimasíðu Alþjóðahvalveiðiráðsins, að hún sé andvíg hvalveiðum, bæði í atvinnu- og vísindaskyni og muni ekki fallast á málamiðlun innan Alþjóðahvalveiðiráðsins, sem felur í sér að hvalveiðibanni verði aflétt.
Þetta kemur fram í umsögn Bandaríkjanna um málamiðlunartillögu, sem samin hefur verið af hópi tólf aðildarríkja hvalveiðiráðsins og miðar að því að leysa deiluna um bann við hvalveiðum í atvinnuskyni. Tilgangur tillögunnar er að auka verndun hvala og bæta stjórnun hvalveiða, annarra en frumbyggjaveiða. Hún gerir ráð fyrir takmörkuðum hvalveiðum Japana, Norðmanna og Íslendinga á tíu ára gildistíma samkomulagsins.
Umsagnir nokkurra ríkja við tillöguna hafa nú verið birtar á vef ráðsins. Í bandarísku umsögninni eru meðal annars gerðar ýmsar athugasemdir við tillöguna og lagt til, að þess verði krafist að allar afurðir, sem falla til við hvalveiðar, verði aðeins nýttar á heimamarkaði.
Þá vilja Bandaríkin tryggja að ekki sé grafið undan friðun hvala í öðrum alþjóðasamtökum, svo sem CITES. Þar hefur Ísland gert fyrirvara við að ýmsar tegundir hvala séu skilgreindar sem dýrategundir í útrýmingarhættu.
Tólf ríkja hópurinn, sem Ísland á sæti í, kemur saman til fundar í Washington í næstu viku. Ef samkomulag næst þar verður niðurstaðan lögð fyrir aðalfund Alþjóðahvalveiðiráðsins í júní.
Bloggað um fréttina
-
Magnús Þór Hafsteinsson Hvalveiðar samofnar sögu USA -
Haraldur Haraldsson Hvalveiðar verði aðeins fyrir heimamarkaði/stjórna Bandaríkjamenn heiminum????
Innlent »
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 22. júní 2009, Innlent Ekki víst að ESB setji hvalveiðar fyrir sig
- Fimmtudagur, 25. júní 2009, Innlent Sáttatónn hjá Alþjóðahvalveiðiráðinu
- Sunnudagur, 28. júní 2009, Innlent Hvetur til algers hvalveiðibanns
- Mánudagur, 21. júní 2010, Innlent Samþykkja ekki málamiðlanir
- Mánudagur, 3. janúar 2011, Innlent Vildu að Japanir þrýstu á Ísland
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































