Margar leita til Kvennaathvarfsins

Fleiri konur hafa leitað í Kvennaathvarfið að undanförnu stækka

Fleiri konur hafa leitað í Kvennaathvarfið að undanförnu mbl.is/Jim Smart

Aðeins einu sinni í 27 ára sögu Kvennaathvarfsins hafa fleiri konur verið skráðar en á síðasta ári. Í fréttatilkynningu sem Samtök um kvennaathvarf sendu frá sér í gær kemur fram að alls 118 konur og 60 börn dvöldu í athvarfinu árið 2009 og veitt voru tæplega 500 ráðgjafar- og stuðningsviðtöl. Þörfin virðist halda áfram að vaxa því það sem af er ári 2010 hefur aðsókn í viðtöl enn stóraukist.

Fram kemur að erlendar konur hafi allt að því horfið úr Kvennaathvarfinu í kjölfar bankahrunsins, en um mitt síðasta ár fór þeim að fjölga aftur og voru 37% dvalarkvenna árið 2009. Fækkun erlendra kvenna mánuðina eftir bankahrun má líklega skýra með auknu atvinnuleysi og óöryggi í samfélaginu. Fjórðungur ofbeldismanna er af erlendum uppruna.

Konur dvöldu í athvarfinu allt frá einum upp í 73 daga, en að meðaltali 11 daga. Fram kemur að konur fara nú í auknum mæli aftur heim í óbreyttar aðstæður, eða 40% þeirra og hefur sá hópur sennilega aldrei verið jafnstór að því er fram kemur í tilkynningunni.  Að auki luku 20% dvöl án þess að ljóst væri hvert þær færu sem er talsvert hærra hlutfall en undanfarin ár. Reynslan hefur sýnt okkur að talsverður hluti þess hóps fer aftur heim til ofbeldismannsins. Því má reikna með að a.m.k. helmingur dvalarkvenna hafi farið aftur heim í óbreyttar aðstæður og vekur það áhyggjur.

Rúmlega 80% kvenna nefna andlegt ofbeldi meðal ástæðna dvalar og 55% líkamlegt ofbeldi. Um 30% nefna ofsóknir eða morðhótanir og er þá oftast um að ræða ofsóknir af hálfu fyrrverandi eiginmanns eða sambýlismanns eða barnsföður. 20% voru með líkamlega áverka við komu en nærri helmingi fleiri höfðu hlotið líkamlega áverka áður.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Matthías Matthíasson, söngvari.

Fyrstur karla til að lesa stigin

21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »
Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.

Versló brautskráir 311 nemendur

21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvísjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú höfuðborg Aserbaídsjan og var þeim Jónsa og Grétu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Framboð auglýst innan viku

17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Ungu Evrópu dreift til ungs fólks

15:14 „Mikilvægt er að vanmeta ekki þátt ungmenna í þeirri umræðu sem nú stendur yfir um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu,“ segir í fréttatilkynningu frá Ungum Evrópusinnum. Meira »

Evróvisjón með viðbættu tísti

Svona mun skjárinn líta út hjá þeim sem eru með myndlykil frá Vodafone og stilla ...
14:35 Þeir Evróvisjónáhorfendur sem vilja sjá skoðanir annarra Íslendinga á frammistöðu keppenda geta í kvöld stillt á sérstaka sjónvarpsrás, þar sem tíst-straumur birtist með útsendingu Ríkisútvarpsins. Meira »

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

Umferð á Vesturlandsvegi
13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »

Bryan Ferry lendir

Bryan Ferry á tónleikum
15:10 Söngvarinn Bryan Ferry lendir í Keflavík nú síðdegis. Að sögn Steinþórs Helga Arnsteinssonar dvelst Ferry hér fram á þriðjudag og hlakkar mikið til að sækja landið heim. Meira »

Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað

Blíðviðri á Egilsstöðum
14:24 Milt og hlýtt veður er um austanvert landið. Hvassara og bleyta á Vestfjörðum. Rigningu er spáð um mestallt land í kvöld en lægir yfir nóttina og birtir til á morgun. Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
RÝMINGARSALA Á VÖRUBÍLADEKKJUM
Rýmingarsala á vörubíladekkjum 315/80 R 22.5 75.000 + vsk. ...
Sorptunnugrind
Sorptunnan lítur mun betur út og þú getur fest grindina við vegg eða stétt þanni...
WESTERN CANADA EXCHANGE
WESTERN CANADA EXCHANGE I live near the Rocky Mountains in western Canada and am...
Trúlofunar- og giftingahringar
Auk gullhringa eigum við m.a. titanium og tungstenpör á fínu verði. Sérsmíði, fr...
 
Ársfundur vina vatnajökuls

Ársfundur Vina Vatnajökuls, hollvinasamt...
Kristniboðssambandið samkoma
Félagsstarf
Háaleitisbraut 58-60 Samkoma í kvöld kl....
Aðalfundur búmanna hsf

Aðalfundur Aðalfundur Búmanna hsf. ver...
Atvinnuhúsnæðitil leigu eða sölu
Atvinnuhúsnæði
Atvinnuhúsnæði Til leig...