Tilgangurinn að sýna fram á hættuna

Top Gear menn óku upp á nýrunnið hraunið á bíl með vatnskældum dekkjum. Samt kviknaði ... stækka

Top Gear menn óku upp á nýrunnið hraunið á bíl með vatnskældum dekkjum. Samt kviknaði í einu dekkinu. mbl.is/RAX

Arctic Trucks segir í yfirlýsingu, að leiðangur breska bílasjónvarpsþáttarins Top Gear á gosstöðvarnar á Fimmvörðuhálsi, hafi verið afar vel undirbúinn og fyllsta öryggis hafi verið gætt. Markmið leiðangursins hafi meðal annars verið að umgengni við gosstöðvarnar sé hættuleg og lífshættuleg á hrauninu sjálfu.

Yfirlýsingin er eftirfarandi:

Í tilefni fréttaflutnings af ferð starfsmanna bresku sjónvarpsstöðvarinnar BBC og  aðstandenda sjónvarpsþáttarins Top Gear, sem sýndur er á BBC, við nýja hraunið á Fimmvörðuháls í gær, miðvikudag, viljum við hjá Arctic Trucks, sem sáum um skipulag ferðarinnar, taka eftirfarandi fram:

Arctic Trucks hefur átt samstarf við þáttastjórnendur Top Gear og starfsfólk BBC um nokkurra ára skeið. Það samstarf hefur m.a falist í kynningu á íslensku hugviti, sem felst í breytingum á jeppum, en einnig og ekki síður í aðstoð starfsmanna fyrirtækisins við þáttastjórnendur Top Gear vegna þáttagerðar á erfiðum og framandi norðlægum slóðum, svo sem á segulpólnum og víðar.

Leiðangurinn á Fimmvörðuháls í vikunni vegna upptöku á sjónvarpsefni fyrir næstu þáttaröð Top Gear var mjög vel undirbúinn. Þar var fyllsta öryggis gætt, eins og raunin er um alla leiðangra á vegum BBC.

Við undirbúning og skipulag ferðarinnar óskaði Arctic Trucks eftir nærveru Hjálparsveitar skáta í Kópavogi, enda hefur Arctic Trucks í áraraðir átt mjög gott samstarfs við hjálparsveitir landsins. Útvegaði sveitin m.a. fjarskipta- og ljósabúnað auk sprunguöryggisbúnaðar. Á leiðinni að eldstöðvunum lenti hópurinn í mjög slæmu veðri og erfiðri færð. Kom nærvera hjálparsveitarinnar sér einkar vel og lýsti starfsfólk BBC ánægju sinni með þau faglegu og fumlausu vinnubrögð sem hjálparsveitin viðhafði.

Varðandi fréttaflutning og umræðu um „akstur á hrauninu“ er rétt að taka fram að eingöngu var framdekkjum á einum bíl ekið upp á heitan hraunjaðarinn. Tilgangurinn var að láta kvikna í dekki fyrir myndavélarnar og þegar því markmiði hafði verið náð var bílnum þegar í stað bakkað niður af hraunjaðrinum aftur.  Sú staðreynd að það kviknaði fljótlega í dekkinu við snertingu við hraunjaðarinn sannar að umgengni við gosstöðvarnar er hættuleg og lífshættuleg á hrauninu sjálfu. Það var m.a. markmið þáttastjórnenda Top Gear með myndatökunum að sýna fram á það. 


Top Gear er með allra vinsælasta sjónvarpsefni í heimi. Það myndefni sem tekið var upp á Fimmvörðuhálsi mun verða mikil landkynning fyrir Ísland og vekja athygli um allan heim. Við upptökurnar upplifði tökuliðið m.a. bæði það versta og það besta í íslensku veðurfari, stórbrotna náttúru og vægðarlaus náttúruöflin á gosstöðvunum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Matthías Matthíasson, söngvari.

Fyrstur karla til að lesa stigin

21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »
Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.

Versló brautskráir 311 nemendur

21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvísjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú höfuðborg Aserbaídsjan og var þeim Jónsa og Grétu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Framboð auglýst innan viku

17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Ungu Evrópu dreift til ungs fólks

15:14 „Mikilvægt er að vanmeta ekki þátt ungmenna í þeirri umræðu sem nú stendur yfir um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu,“ segir í fréttatilkynningu frá Ungum Evrópusinnum. Meira »

Evróvisjón með viðbættu tísti

Svona mun skjárinn líta út hjá þeim sem eru með myndlykil frá Vodafone og stilla ...
14:35 Þeir Evróvisjónáhorfendur sem vilja sjá skoðanir annarra Íslendinga á frammistöðu keppenda geta í kvöld stillt á sérstaka sjónvarpsrás, þar sem tíst-straumur birtist með útsendingu Ríkisútvarpsins. Meira »

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

Umferð á Vesturlandsvegi
13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »

Bryan Ferry lendir

Bryan Ferry á tónleikum
15:10 Söngvarinn Bryan Ferry lendir í Keflavík nú síðdegis. Að sögn Steinþórs Helga Arnsteinssonar dvelst Ferry hér fram á þriðjudag og hlakkar mikið til að sækja landið heim. Meira »

Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað

Blíðviðri á Egilsstöðum
14:24 Milt og hlýtt veður er um austanvert landið. Hvassara og bleyta á Vestfjörðum. Rigningu er spáð um mestallt land í kvöld en lægir yfir nóttina og birtir til á morgun. Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
BAKPOKI SPLUNKUNÝR TIL SÖLU
Mjög góður og öflugur bakpoki til sölu ca 80-115L mörg hólf, fóðraðar ólar, regn...
Vaktaðu heitapottinn!
Með einföldu kerfi getur þú vaktað hita og straum á heitapottinum. Vertur áhyggj...
Málningar- og viðhaldsvinna
Getum bætt við okkur inni- og útiverkefnum. Vönduð vinnubrögð og góð umgengni. T...
Sumarhús til leigu - Reykholt Bisk.
Bústaður til leigu við Reykholt í Biskupstungum. Laus þessa viku (Hvítasunnuhelg...
 
Samauglýsing ríkiskaup
Tilboð - útboð
* Nýtt í augl...
Bifreiðauppboð
Uppboð
Sýslumaðurinn á Selfossi Hörðuvöllum 1,...
Aðalfundur búmanna hsf

Aðalfundur Aðalfundur Búmanna hsf. ver...
Samkoma
Félagsstarf
Safnaðarheimilið Grens...