Áfram í gæsluvarðhaldi
Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjaness um gæsluvarðhald yfir einum Litháanum, sem dæmdir voru í 5 ára fangelsi fyrir mansal nýlega, verði framlengt þar til dómur fellur í Hæstarétti. Rétturinn stytti þó gæsluvarðhaldstímann til 15. júní en héraðsdómur hafði fallist á kröfu lögreglu um að maðurinn yrði í varðhaldi til 1. júlí.
Fimm Litháar voru nýlega dæmdir í 5 ára fangelsi fyrir mansal en einn Íslendingur, sem einnig var ákærður í málinu, var sýknaður. Litháarnir hafa setið í gæsluvarðhaldi frá því í október og hefur það varðhald ítrekað verið framlengt, síðast um mánaðamótin.
Einn mannanna kærði úrskurð héraðsdóms um framlengingu gæsluvarðhaldsins til Hæstaréttar. Lögreglan vísaði til hættumats greiningardeildar ríkislögreglustjóra til stuðnings kröfu um gæsluvarðhald. Hæstiréttur segir, að í málinu liggi aðeins fyrir stuttur úrdráttur þessa hættumats. Þar komi nafn Litháans ekki fyrir heldur aðeins almennar lýsingar á skipulagðri glæpastarfsemi sem menn frá Litháen séu taldir halda uppi hér á landi og fullyrðing, að meðal annars umræddur maður hafi „komið við sögu lögreglu hér á landi“ og mál sé að finna í „gagnagrunnum lögreglu“ sem sýni þetta.
Litháinn mótmælti því að hann tengist skipulagðri glæpastarfsemi. Hann er fæddur 1986 og sagðist hafa búið hjá móður sinni á Íslandi í um það bil þrjú ár. Vísaði hann til þess að ekki væri í gögnum málsins að finna neinar upplýsingar um ætluð refsiverð brot hans hér á landi og sagðist aldrei hafa gerst sekur um ofbeldisbrot eða nokkur önnur brot ef frá væri talinn mansalsdómurinn.
Hæstiréttur taldi hins vegar að skilyrðum um gæsluvarðhald væri fullnægt en stytti gæsluvarðhaldstímann eins og áður sagði.
Innlent »
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 30. apríl 2010, Innlent Gæsluvarðhald í vændismáli framlengt
- Fimmtudagur, 11. mars 2010, Innlent Hæstiréttur staðfestir gæsluvarðhald
- Mánudagur, 2. nóvember 2009, Innlent Áfram í farbanni
- Mánudagur, 11. maí 2009, Innlent Í gæsluvarðhaldi vegna síbrota
- Þriðjudagur, 22. júní 2010, Innlent Gæsluvarðhald framlengt og fellt úr gildi
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































