Fjárfestar hafa áhyggjur
Enn er áhugi meðal erlendra fjárfesta á Íslandi en þeir hafa áhyggjur af ýmsum þáttum hér, m.a. að lánshæfi Íslands verði lækkað enn frekar. Þetta segir Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra hafa komið fram í samtölum sínum við fjárfesta og fleiri aðila í Bandaríkjunum síðustu daga. Hins vegar muni samkomulag um aðra endurskoðun AGS hækka lánshæfiseinkunnir Íslands.
Gylfi var meðal frummælenda á fundi Íslensk-ameríska viðskiptaráðsins í New York í gær, ásamt Mark Flanagan frá AGS, Lee Buchheit, aðalsamningamanni Íslands í Icesaave-viðræðunum, Árna Magnússyni frá Íslandsbanka og Ásgeiri Margeirssyni frá Magma Energy.
Á þeim fundi var staða efnahagsmála á Íslandi kynnt, staðan í viðræðunum um Icesave, og Flanagan kynnti efnahagsáætlun Íslands í samstarfi við AGS, sem og efnahagshorfur hér á landi. Þeir Árni og Ásgeir kynntu möguleika í orkumálum á Íslandi.
„Ýmsir töldu það hafa mjög slæm áhrif ef lánshæfi Íslands yrði lækkað enn frekar. Þá yrði erfitt fyrir fjárfesta að rökstyðja að hætta miklu fé inn í land sem væri ekki með lánshæfiseinkunn í fjárfestingarflokki. Við verðskuldum hærri lánshæfiseinkunn en því er ekki að leyna að áhyggjur af því að áætlun Alþjóða gjaldeyrissjóðsins væri á ís hefur veikt lánshæfismatið. Vonandi verða þessar síðustu fréttir til að snúa þeirri þróun við. Það gæti haft bein áhrif á lánshæfismat fyrirtækja og mat fjárfesta á Íslandi og þar með liðkað fyrir fjárfestingum,“ sagði Gylfi við Morgunblaðið.
Spurt um rannsóknarskýrsluna
Gylfi sagði viðmælendur sína í New York og Washington hafa verið vel að sér í málefnum Íslands, einhverjir hefðu spurt út í komandi rannsóknarskýrslu Alþingis en innan AGS skipti sú skýrsla ekki formlega séð máli í umræðunni þar.
Bloggað um fréttina
-
Sigurjón Þórðarson Er Ísland að vinna í lottói? -
-
Gunnar Skúli Ármannsson Í hverra þágu er samið ? -
Lúðvík Júlíusson Frjáls verslun, 2. tbl. 2010: Efnahagslífið í fjötra!
Innlent »
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 11. apríl 2011, Innlent Ömurleg frammistaða Moody's
- Laugardagur, 10. apríl 2010, Innlent Líklega í gegn 16. apríl
- Mánudagur, 29. mars 2010, Innlent Endurskoðun AGS ljúki sem fyrst
- Föstudagur, 25. júní 2010, Innlent AGS hefur áhyggjur af bönkunum
- Fimmtudagur, 29. október 2009, Innlent Skuldirnar ekki óviðráðanlegar
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































