Loksins ber stritið árangur

Steingrímur J. Sigfússon. stækka

Steingrímur J. Sigfússon. Ernir Eyjólfsson

mbl.is Eftir Björn Jóhann Björnsson - bjb@mbl.is

„Ég er að sjálfsögðu hæstánægður með þetta, loksins ber stritið einhvern árangur. Við höfum eytt í þetta gríðarlegum tíma, orku og ferðalögum að tryggja að þetta gengi í gegn. Núna erum við að uppskera í samræmi við það,“ segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra um samkomulagið sem náðst hefur um að önnur endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands verði tekin fyrir í stjórn Alþjóða gjaldeyrissjóðsins, AGS, 16. apríl nk.

Steingrímur segir það segja sína sögu um hug AGS og starfsmanna sjóðsins að setja Ísland á dagskrá í stjórninni með óvenju stuttum fyrirvara, sem þýði að menn ætli að beita sér fyrir flýtimeðferð í málinu.

„Ég tel það nokkuð ljóst, að þetta hefði ekki verið sett svona inn á dagskrána nema vegna þess að það er bærilega vel tryggt að þetta fari snurðulaust í gegn. Það geta engar málefnalegar ástæður staðið í vegi fyrir því að endurskoðunin verði samþykkt. Ég er mjög bjartsýnn á það," segir Steingrímur. 

„Þetta eru mjög góð tíðindi og mun breyta miklu fyrir okkur að kyrrstaðan sé rofin að þessu leyti. Það gerir okkur hitt bærilegra, hvernig sem verður með Icesave-málið. Það er mun betri staða að þetta sé ekki frosið líka. Þetta eru einnig mjög góð skilaboð út ávið og til marks um að við séum komin aftur á sporið með þennan hluta málsins," segir Steingrímur ennfremur og telur að samkomulagið muni m.a. hafa áhrif á lánshæfismat Íslands, treysta stöðuna fyrir næstu vaxtaákvörðun Seðlabankans, og fleiri atriði.

Ætti að opnast aðgangur að öðrum lánum

Eftir aðra endurskoðunin munu íslensk stjórnvöld hafa aðgang að þriðja hluta láns AGS upp á 20 milljarða króna. Hvort og hvernig það lán verður nýtt segir Steingrímur að eigi eftir að meta í fjármálaráðuneytinu í samráði við Seðlabankann. Opnast geti aðgangur að öðrum lánum, eins og hjá Póllandi og Norðurlöndunum.

„Ég geri mér von um að þetta verði endurskoðun með fullri fjármögnun. Verði þetta gert í sæmilegu samkomulagi gegnum stjórn sjóðsins sé ég ekki hvað Norðurlöndin ættu að bera fyrir sig, að gera ekki aðgengilegan annan lánahlutann frá þeim. Ég er bjartsýnn á að málið nái fram að ganga og á frekar von á að þetta verði afgreitt samhljóða í stjórn sjóðsins. Það yrði pínleg staða fyrir einhvern minnihluta í stjórninni að ætla að finna einhverjar ástæður til að standa gegn endurskoðuninni. Þær aðstæður eru að mínu mati ekki til staðar. Við höfum uppfyllt alla skilmála áætlunarinnar og geri mér vonir um að við munum frá frekar jákvæða umfjöllun hjá sjóðnum," segir Steingrímur J. Sigfússon í samtali við mbl.is.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Matthías Matthíasson, söngvari.

Fyrstur karla til að lesa stigin

21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »
Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.

Versló brautskráir 311 nemendur

21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvísjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú höfuðborg Aserbaídsjan og var þeim Jónsa og Grétu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Framboð auglýst innan viku

17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Ungu Evrópu dreift til ungs fólks

15:14 „Mikilvægt er að vanmeta ekki þátt ungmenna í þeirri umræðu sem nú stendur yfir um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu,“ segir í fréttatilkynningu frá Ungum Evrópusinnum. Meira »

Evróvisjón með viðbættu tísti

Svona mun skjárinn líta út hjá þeim sem eru með myndlykil frá Vodafone og stilla ...
14:35 Þeir Evróvisjónáhorfendur sem vilja sjá skoðanir annarra Íslendinga á frammistöðu keppenda geta í kvöld stillt á sérstaka sjónvarpsrás, þar sem tíst-straumur birtist með útsendingu Ríkisútvarpsins. Meira »

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

Umferð á Vesturlandsvegi
13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »

Bryan Ferry lendir

Bryan Ferry á tónleikum
15:10 Söngvarinn Bryan Ferry lendir í Keflavík nú síðdegis. Að sögn Steinþórs Helga Arnsteinssonar dvelst Ferry hér fram á þriðjudag og hlakkar mikið til að sækja landið heim. Meira »

Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað

Blíðviðri á Egilsstöðum
14:24 Milt og hlýtt veður er um austanvert landið. Hvassara og bleyta á Vestfjörðum. Rigningu er spáð um mestallt land í kvöld en lægir yfir nóttina og birtir til á morgun. Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Toyota Corolla 2006, sjálfskipt, ek. 41 þ., v. 1.950þ
Til sölu Toyota Corolla '06, ekin 41 þ., sjálfskipt, sjálfvirk miðstöð með loftk...
SKRIFBORÐSSTÓLL GOTT VERÐ
er með nokkra góða stóla verð frá 5 þús sími 869-2798...
Upphengi fyrir reiðhjól á rennibraut
Til sölu upphengi fyrir reiðhjól á rennibraut. rennibraut 3 metra með 10 krókum...
Gasgrill
Til sölu gasgrill með hitaplötu. Tilboð. Uppl. í síma 863-7512...
 
Sýslumaðurinn á selfossi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Administrative assistant
Sérfræðistörf
Icelandic Institute for Intelligent Mac...
Ársfundur byggðastofnunar 1 júní 2012
Fundir - mannfagnaðir
Ársfundur Byggðastofnunar 1. júní ...
Sýslumaður snæfellinga - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....