Samkomulag um endurskoðun

Dominique Strauss-Kahn, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
Dominique Strauss-Kahn, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins Reuters

Samkomulag hefur náðst um að önnur endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands í samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn  verði tekin fyrir í stjórn sjóðsins. Stefnt er að því að endurskoðunin verði rædd í framkvæmdastjórn sjóðsins 16. apríl næstkomandi. 

Að sögn efnahags- og viðskiptaráðuneytisins munu íslensk stjórnvöld hafa, eftir lok endurskoðunarinnar, aðgang að þriðja hluta láns sjóðsins að upphæð 20 milljarða króna.

Íslensk stjórnvöld hafa sent sjóðnum endurnýjaða viljayfirlýsingu í samræmi við reglur sjóðsins. Í henni er lýst þeim árangri sem þegar hefur náðst við að draga úr áhrifum bankahrunsins. Yfirlýsingin lýsir einnig næstu skrefum efnahagsáætlunarinnar sem leggja munu frekari grunn að efnahagsbata. Hún verður birt í heild þegar endurskoðunin hefur verið afgreidd í stjórn sjóðsins.

Á undanförnum vikum hefur verið unnið að því að fá endurskoðun samstarfsáætlunarinnar afgreidda í stjórn sjóðsins, nú síðast með fundum efnahags- og viðskiptaráðherra með framkvæmdarstjóra og stjórnarmönnum sjóðsins í Washington á miðvikudaginn. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert