Nýr styrkur til golfklúbbsins settur á ís
Á Korpúlfsstaðavelli GR. Þorkell Þorkelsson
„Skýringarnar sem við höfum fengið staðfesta að ekki hafi verið farið í framkvæmdir sem átti að klára samkvæmt fyrri samningi.“
Í ljós hefur komið að aðeins hefur verið framkvæmt fyrir um helming þeirrar upphæðar sem Reykjavíkurborg veitti Golfklúbbi Reykjavíkur í framkvæmdastyrk samkvæmt samningi sem gerður var árið 2006.
Garðar Eyland, framkvæmdastjóri GR skýrir málið þannig að stjórn klúbbsins hafi í miðju bankahruni haustið 2008 tekið þá ákvörðun að fresta stórum framkvæmdum sem ráðgerðar voru fyrir 2009 í ljósi óvissunnar sem þá ríkti. Hann fullyrðir að styrkir frá borginni hafi aldrei verið nýttir í rekstur klúbbsins, sem hafi brugðist við bankahruni af skynsemi og ráðdeild með því að bíða og greiða frekar niður lán vegna eldri framkvæmda.
Málið hefur nú verið sett til skoðunar hjá innri endurskoðun Reykjavíkurborgar og jafnframt hjá embættismönnum á íþrótta- og tómstundasviði. Hanna Birna segir að málið verði skoðað frá báðum hliðum því einnig þurfi að kanna hvort eftirliti borgarinnar sé ábótavant.
Borgin í góðri trú
„Það hefði verið eðlilegt að þeir upplýstu okkur um ákvarðanir stjórnar GR því þær hefðu getað kallað á breytingar á samningnum. Það gerðu þeir ekki þannig að borgin var í góðri trú um að samningurinn væri fullnustaður.Hins vegar þurfum við líka að skoða hvort bæta þurfi okkar eftirlit. Við erum með mjög skýrar reglur og skýr ferli en þurfum að athuga hvort það geti verið að framkvæmdin virki ekki sem skyldi. Ég hef þegar falið embættismönnum að hefja þá vinnu.“
Reykjavíkurborg samþykkti á þriðjudag að styrkja GR um 230 milljónir til að stækka völl félagsins á Korpúlfsstöðum. Hanna Birna segir að sú ákvörðun hafi helgast af því að borgin hafi viljað standa við skuldbindingar sínar og eðlilegt sé að ætlast til þess að viðsemjendur geri slíkt hið sama.
„Við höfum til margra ára átt mjög gott samstarf við Golfklúbb Reykjavíkur og væntum þess að þannig verði það áfram.
Það er hins vegar alveg ljóst að á meðan fyrri samningur hefur ekki verið fullnustaður og framkvæmdir honum tengdar kláraðar getur nýr samningur ekki tekið gildi.“





































