55 milljarða lán til starfsmanna

Lán Glitnis til starfsmanna sinna, og/eða eignarhaldsfélaga í þeirra eigu, námu alls um 55 milljörðum króna þegar þau urðu hæst í september 2008. Þetta kemur fram í umfjöllun rannsóknarnefndarinnar í 3. hefti skýrslunnar um launa- og hvatakerfi bankanna.

Í umfjölluninni kemur fram að ef miðað er við félög sem starfsmaður átti ráðandi hlut í, þ.e. um 20% eignarhlut eða stærri. var heildarlánafyrirgreiðsla Glitnis til starfsmanna og eignarhaldsfélaga þeirra um 35 milljarðar kr. við fall bankans. Til trygginga fyrir a.m.k. þriðjungi þeirra lána stóðu hlutabréf í bankanum sjálfum.

Nefndin hefur aflað ítarlegra upplýsinga um laun og starfskjör stjórnenda bankanna, árangurstengingu launa og kaupréttarsamninga.

Í umfjöllun um launa- og hvatakerfið hjá glitni segir að það veki athygli „að hvorki er getið í ársskýrslu Glitnis árið 2007 um hluta skuldbindinga sem félagið tókst á hendur með ráðningarsamningi við Lárus, alls 550 milljónir kr., né skuldbindingar félagsins vegna bónusgreiðslna til Bjarna Ármannssonar, alls 270 milljónir kr. Einungis er getið þeirrar 300 milljóna króna eingreiðslu sem Lárus fékk við undirritun ráðningarsamningsins og þeirrar 100 milljóna króna greiðslu sem innt var af hendi til Bjarna Ármannssonar,“ segir í úttektinni.

Fram kemur að Glitnir veitti 15 milljarða kr. lán til hlutafjárkaupa í því skyni að hvetja lykilstarfsmenn til að starfa áfram hjá bankanum. Þar af  lánaði bankinn fjórtán framkvæmdastjórum og lykilstarfsmönnum  bankans alls um 8,1 milljarð í maí 2008.

„Vakin er athygli á því að á aðalfundi Glitnis 20. febrúar 2008 lét Þorsteinn Már Baldvinsson, nýkjörinn stjórnarformaður, þau orð falla að kaupréttarsamningar yrðu ekki gerðir við starfsfólk Glitnis eins og staðan væri. Rannsóknarnefnd Alþingis vekur einnig athygli á lánum sem bankinn veitti stjórnarmanni og framkvæmdastjóra í gegnum eignarhaldsfélög þeirra, KÞG Holding og HG Holding, m.a. til útgreiðslu arðs hjá félögum sem voru í taprekstri. Lánin voru veitt gegn veðum í bréfum í Glitni og virði tryggingaþekju lánsins var um 85% í tilfelli KÞG Holding, en hins vegar einungis 68% í tilfelli HG Holding.

Það vekur athygli rannsóknarnefndar að ítrekað var endursamið um kjör stjórnenda og starfsmanna og þá ávallt þeim til hagsbóta,“ segir í 10. kafla skýrslunnar.

Bent er á að ráðning Lárusar Welding og samþykki á ráðningarkjörum hans fór fram á 35 mínútna löngum stjórnarfundi. Er þetta sagt vekja spurningar um vandaða stjórnarhætti.

„Afgerandi breyting varð á uppbyggingu launa hjá æðstu stjórnendum Glitnis sem og hvatakerfi félagsins á tímabilinu 2004–2008. Umbreytingin var til þess fallin að auka verulega áhættusækni stjórnenda,“ segir í umfjöllun rannsókanrnefndarinnar um launa- og hvatakerfið sem við lýði var hjá Glitni.  

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Grétu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næst mest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á manninn þar sem hann hékk á klettanös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvísjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigur þess mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19 landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvísjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú höfuðborg Aserbaídsjan og var þeim Jónsa og Grétu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Yndislegur HRFÍ Maltese hvolpur til sölu
7 mánaða gamall og með ættbók frá HRFÍ. Foreldrar eru Alþjóða- og íslenskir meis...
DÖMU MOKKASÍUR
Teg. 5011 Mjúkar og þægilegar dömu mokkasíur úr leðri, skinnfóðraðar. - Litur: S...
Sumarhús 45-55m2
Óska eftir sumarhúsi á hvaða byggingastigi sem er til fluttnings. Myndir og upp...
HÚSGÖGN,HEIMILISTÆKI, SKRAUTMUNIR OG FLEIRA TIL SÖLU.
Rococo sófasett, skrifstofuhúsgögn, rúm, ísskápar, þvottavélar, Þurrkarar, Nuddp...
 
12834 stofnstígur - reykjavíkurborg

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Sýslumaðurinn í reykjavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Samtök atvinnulífsins
Önnur störf
LÖGFRÆÐINGUR Samtök atvinnulífsins lei...
Skólastjóri hrafnatilsskóla
Sérfræðistörf
Mynd af auglýsingu ...