Bankarnir skekktu verðmyndun eigin hlutabréfa
Inngrip Kaupþings í viðskipti með hlutabréf í bankanum varð til þess að skekkja þá mynd sem þáverandi hluthafar bankans höfðu verðmæti bréfa sinna. Þetta kemur fram í umfjöllun skýrslu rannsóknarnefndar um bankahrunið um þróun á hlutabréfum Kaupþings. Fram kemur í skýrslunni að þessi inngrip hafi leitt til þess að hlutabréfin hafi verið talin verðmeiri en innistæða var fyrir og þar af leiðandi hafi hluthafar keypt bréfin of háu verðiþ
Rannsóknarnefndin bendir einnig á að aðrir viðskiptamenn Kaupþings hafi orðið fyrir skaða vegna þessa þar sem að þeir hafi talið stöðu bankans sterkari en efni stóðu til. Ennfremur er bent á það tap sem hlaust af viðskiptum bankans með eigin hlutabréf, þar sem bankinn keypti
bréf á hærra verði en selt var á. Það fyrirkomulag sem haft var á lánveitingum
bankans vegna ýmissa stórra viðskipta með hlutabréf í bankanum leiddi einnig
til þess að endurheimt þeirra lána varð ótrygg með tilheyrandi tapi fyrir
bankann og þar með fyrir þáverandi hluthafa og lánadrottna.
Greining rannsóknarnefndar á verðþróun hlutabréfa í Kaupþingi leiddi í ljós umtalsverð umsvif bankans sjálfs í viðskiptum með eigin bréf. Leiddar eru að því líkur að verðhækkanir á gengi hlutabréfa Kaupþings hafi að miklu leyti verið drifin áfram af auknum lánveitingum til hlutabréfakaupa og vanmati á þeirri áhættu sem slíkum kaupum fylgir. Rannsóknarnefndin kemst meðal annars að þeirri niðurstöðu að stjórnendur Kaupþings hafi litið á sig sem viðskiptavaka í eigin bréfum. Rannsóknarnefndin telur að mikið ójafnvægi á kaupum og sölu
deildar eigin viðskipta Glitnis sýni að bankinn hafi staðið í vegi
fyrir
eðlilegri leiðréttingu á of háu gengi hlutabréfanna og það hafi verið
viðbrögð
við þeim vanda sem kominn var upp vegna of mikillar veðsetningar
hlutabréfa.
Eins og áður segir getur slíkt ójafnvægi í einhverjum tilvikum verið
eðlilegt til skemmri tíma en getur ekki gengið til lengdar.
Fram kemur í skýrslunni að bankinn hafi sjálfur borið stærstan hluta áhættunnar af fjármálagjörningum sem voru gerðir til þess að styðja við gengi hlutabréfa Glitnis. Ekki fæst annað séð að mati skýrslhöfunda að hluti þessara lána hafi verið veittur til þess að liðka fyrir sölu eigin hlutabréfa úr veltubók
Rannsóknarnefndin segir hið sama hafa verið upp á teningnum hjá Landsbankanum. Skuldsett hlutabréfakaup hafi magnað upp gengi hlutabréfa bankans og rétt eins og Kaupþing og Glitnir hafi bankinn notað inngrip til þess að styðja við gengi þeirra umfram það sem eðlilegt getur talist. Rannsóknarnefndin telur að mikið ójafnvægi á kaupum og sölu eigin viðskipta Landsbankans
sýni að bankinn hafi staðið í vegi fyrir eðlilegri leiðréttingu á of háu gengi
hlutabréfanna og það sýni viðbrögð við þeim vanda sem kominn var upp
vegna of mikillar veðsetningar hlutabréfa.






































