Frétti af vaxtalækkun 5 mínútum áður

Rannsóknarnefnd Alþingis gagnrýnir Seðlabankann harðlega í skýrslu sinni fyrir ýmsar aðgerðir, sem gripið var til í kjölfar þess að íslenska bankakerfið hrundi í byrjun október 2008. Segir nefndin bankann meðal annars hafa staðið fyrir stysta fastgengistímabili Íslandssögunnar og þótt víðar væri leitað en það stóð í tvo daga.

„Þessar aðgerðir urðu síst til að auka trúverðugleika Seðlabankans á tímum þegar reyndi á bankann sem aldrei fyrr," segir í skýrslunni.

Fram kemur að til að sporna við of öru útstreymi til að byrja með er vöxtum jafnan haldið háum um nokkurt skeið. Á meðan unnið var að mótun efnahagsáætlunar með aðkomu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins ákvað meirihluti bankastjórnar Seðlabankans, án undangengins fundarhalds sem vinnureglur bankans gengu út frá, að lækka vexti um 3,5 prósentur.

Rannsóknarnefndin segir, að aðalhagfræðingur bankans beri ábyrgð á greiningarvinnu sem notuð sé til að undirbyggja vaxtaákvarðanir og geri síðan tillögu til bankastjórnar í takt við mat á ástandinu. Að þessu sinni hafi Arnór Sighvatsson, þáverandi aðalhagfræðingur Seðlabankans, frétt af  vaxtaákvörðuninni fimm mínútum áður en hún var opinberuð og eftir að búið var að rita fréttatilkynninguna.

„Verulega líklegt verður að teljast að skaðinn sem hlaust af þessum ómarkvissu og fálmkenndu tilraunum bankastjórnar Seðlabankans hafi valdið því að nauðsynlegt var talið að hækka vexti bankans í 18% nokkrum dögum síðar," segir í skýrslunni.

Stjórnlaus banki

Þórarinn G. Pétursson, hagfræðingur hjá Seðlabankanum, lýsti þessari atburðarás fyrir rannsóknarnefndinni: „Því að bankinn var bara hreint út sagt bara stjórnlaus, algjörlega stjórnlaus, það var bara þannig.“

Þórarinn sagðist svo hafa skrifað í minnisbókina sína fyrir þennan dag „enn eitt ruglið. [...] Ég er að tala um fastgengisyfirlýsinguna og Rússalánið. Ég man, ég á  aldrei eftir að gleyma þeim degi, því að ég kem bara til vinnu og það er búið að vera brjálað að gera, mikið álag og allt það og ég held að ég hafi aldrei séð Arnór [aðalhagfræðing bankans] eins miður sín eftir að hafa [verið] kallaður upp  á fund og kemur niður og ég bara sá að það hafði eitthvað mikið komið fyrir,
því að hann var gjörsamlega niðurbrotinn.“

Þórarinn bætir við að þegar hann hafi innt Arnór eftir því hvað væri um að vera þá hefði Arnór sagt að það hafi „verið tekin ákvörðun um það að festa gengi krónunnar gagnvart [vísitölunni 175] Og sú, þessi tala, sagði hann mér að hefði bara verið, [...] ákveðin út í bláinn... þetta var bara ákveðið einhvern veginn og kastað einhverjum tölum út í loftið og þá bara, þetta var bara ákvörðunin. Hann [Davíð Oddsson, formaður bankastjórnar] hafði mikinn áhuga á að það væri Seðlabankinn sem mundi lýsa yfir þessu Rússaláni til að vera á undan  fjármálaráðuneytinu með yfirlýsinguna, hann hljóp náttúrlega svona algjörlega á sig, það var enginn fótur fyrir þessu. ...ég held að þetta sé lágpunkturinn, ... Eða hápunktur stjórnleysisins en lágpunktur [...]. Þetta var algjörlega skelfilegt..."

Var öllum lokið

Arnór lýsti atburðarásinni þannig fyrir rannsóknarnefndinni: „Það er eiginlega þá [7. október 2008] sem allt fer algjörlega úr böndum, að bara held ég óhætt að segja að hafi verið algjört paník-ástand og byrjaði náttúrlega með því. Og þá kom sem sagt í ljós að það var eitthvað rætt um þessa hugmynd um að kalla til sjóðinn og þeir voru þá komnir til landsins, sem sagt ekki kalla til sjóðinn heldur að fara á prógramm. Þá voru viðbrögðin [hjá formanni bankastjórnar] þau að við þyrftum ekki á þessu láni að halda vegna þess að það væri búið að semja við Rússa um að veita okkur lán. Og lá mikið á að koma þeirri tilkynningu [...]. Og það er eiginlega með þá lánveitingu, held ég, í farteskinu sem reyndist nú vera hugarburður að einhverju leyti, hvort það var sendiherrann sem að, eða formaður bankastjórnar, að þá töldu menn sig vera nægilega sterka til þess að fara að festa gengið eða gefa einhverjar yfirlýsingar. Það að ég hafi reyndar lagt fram tillögu sem gekk út á það að reyna að róa markaðinn með því að tilkynna um það að það væru áform um að fara í prógramm hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og að gengið væri orðið mjög lágt og bankinn teldi að til lengri tíma litið þá gæti það [...]. Nei, þetta var algjörlega stjórnlaust og varðandi síðan vaxtalækkunina sem að var tilkynnt þarna, vextir voru lækkaðir í 12% og mér var tilkynnt sú ákvörðun fimm mínútum áður en að hún fór á vefinn og það gerðist með þeim hætti að formaður bankastjórnar kallaði mig á eintal og tjáði mér þessa ákvörðun bankastjórnar og ég hélt fyrst að hann væri að grínast … og, en svo kom í ljós að það var ekki. Og ég verð nú bara að viðurkenna að mér var öllum lokið, vissi ekki hvort ég átti að hlæja eða gráta því að þetta var auðvitað …“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Grétu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næst mest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á manninn þar sem hann hékk á klettanös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvísjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigur þess mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19 landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvísjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú höfuðborg Aserbaídsjan og var þeim Jónsa og Grétu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
DÍSEL BMW 525 station, sjálfskiptur, nýskoðaður 2013
Til sölu Bmw 525 dísel station nýskráður 4.12.2002, nýskoðaður 2013, sjálfskiptu...
GLÆSILEGIR
GLÆSILEGIR Teg. MYSTERY - Hægt að nota ÁN HLÝRA - Glæsileg blúnda, fæst í A, B, ...
Húsnæði með bílskúr óskast í sumar.
Húsnæði með bílskúr óskast í júní til ágúst, í Rvík - Hafnarfj. 3-5 svefnherb., ...
SANDBLÁSTURFILMUR
Sandblásturfilmur í öllum stærðum og gerðum fyrir heimili og fyrirtæki. Sendið f...
 
Styrkir til eflingar starfsmenntunar
Tilkynningar
Styrkir til eflingar starfsmennt...
Lausar kennarastöður við leik- og grunns
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar kennarastöður við leik...
Deiliskipulagstillaga á grundartanga

Deiliskipulagstillaga á Grundartang...
Intellecta
Stjórnunarstörf
Bæjarstjóri Sveitarfélagsins Garði La...