Ábyrgðin ekki utanríkisráðherra

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir stækka

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir

„…var það hlutverk fjármálaráðuneytis að annast fjármál ríkisins og meta þróun og horfur í efnahagsmálum. Þá fór viðskiptaráðuneyti með ábyrgð á málum er varða fjármálamarkað og gjaldeyri. Samkvæmt reglugerðinni var utanríkisráðuneytinu ekki falið að annast nein málefni á sviði fjármála eða bankamála sem tengjast því sem að ofan er talið.“


Ekki á hennar valdi að grípa fram fyrir hendur ráðuneyta
Þetta kom fram í svari Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, fyrrverandi utanríkisráðherra til rannsóknarnefndar Alþingis en nefndin taldi fram þrjú atriði sem gætu mögulega verið talin til mistaka eða vanrækslu í starfi hennar sem ráðherra. 

Í svarinu vísar Ingibjörg  til bankastjórnarsamþykktar frá nóvember 2006, um hlutverk Seðlabanka Íslands komi til lausafjárvanda sem feli í sér kerfisáhættu og samkomulags milli forsætisráðuneytisins, fjármálaráðuneytisins, viðskiptaráðuneytisins, Fjármálaeftirlitsins og Seðlabanka Íslands um samráð varðandi fjármálastöðugleika og viðbúnað frá því í febrúar sama ár. Í þessum gögnum komi skýrt fram hver verkaskipting hafi verið. Þá segir síðar í bréfinu. „Þá hafði ég hvorki á valdi mínu að grípa fram fyrir hendur þeirra ráðuneyta eða stofnana sem þessi mál heyrðu undir né átti ég aðgang að starfsfólki með sérþekkingu á þessu sviði eins og viðkomandi ráðherrar.“


Rannsóknarnefndin var þarna að vísa til fundar með Davíð Oddssyni, þáverandi Seðlabankastjóra, Geir H. Haarde, þáverandi forsætisráðherra og Árna M. Mathiesen þáverandi fjármálaráðherra þann 7. febrúar 2008, þar sem fram hafi komið hve ástandið var orðið alvarlegt.  Í skýrslutöku Rannsóknarnefndarinn sagði Davíð Oddsson um viðbrögð þeirra ráðherra sem sátu fundinn: „„Ég get bara sagt það að þegar við komum út af þessum fundi þá sagði ég svona í minn hóp: Ef þetta hreyfir ekki við þessu fólki þá er ekkert sem gerir það. Og ég sagði, og ég heyrði það á umræðunum að þetta fólk er loksins búið að sjá ljósið. Svo fengum við engin viðbrögð.“

Segist ekki hafa brugðist sem oddviti Samfylkingarinnar
„Fyrst skal til tekið að oddvitum ríkisstjórnarflokka er ekki markað sérstakt hlutverk í lögum eða öðrum settum reglum. Ég verð því ekki sökuð um að hafa á einhvern hátt brugðist hlutverki mínu sem oddviti Samfylkingarinnar með vísan til reglna sem gilda um ábyrgð í slíku starfi.Í”“ segir Ingibjörg en í  bréfi nefndarinnar segir að hún hafi setið fundi, ekki aðeins sem ráðherra heldur einnig oddviti annars stjórnarflokksins.

Er þar gagnrýnt að Ingibjörg hafi ekki tekið það sem kom fram á fundinum fyrir á ríkisstjórnarfundi eða við ráðherra viðkomandi málefnis. Er einnig vísað til annarra funda um efnið í apríl, maí, og júlí sem hún hafi setið án þess að hún hafi talið ástæðu til að gera viðeigandi ráðstafanir í kjölfarið en nefndin kannaði hvort slíkt gæti talist til vanrækslu. Nefndin vísar til minnisblaðs Ingibjargar Sólrúnar eftir fund 1. apríl, þar sem komið hafi fram að 193 milljónir sterlingspunda hafi runnið út af Icesave reikingum.

Ingibjörg segir rangt að haldið hafi verið fram á fundinum að um áhlaup” hafi verið að ræða. „Það gat hins vegar aldrei verið á ábyrgð utanríkisráðuneytisins að skilgreina hvaða viðbrögð - til varnar eða sóknar - íslenska ríkið ætti að hafa uppi vegna aðsteðjandi vanda fjármálafyrirtækja í einkaeigu.“

Ekki hennar hlutverk að gera sjálfstæða rannsókn á bönkunum
Einnig vísar nefndin til ávarps Ingibjargar Sólrún á ráðstefnu á vegum utanríkisráðuneytisins þann 22. febrúar 2008, þar sem umfjöllunarefnið var „Umfjöllun um íslenska fjármálageirann - hlutverk utanríkisþjónustunnar“. 

Þá segir: „Í því gerðuð þér að umtalsefni orðsporsáhættu íslenska bankakerfisins. Í skýrslu yðar fyrir rannsóknarnefnd Alþingis kom m.a. fram að rætt hefði verið um: „ [...] hvernig við gætum – ja, kannski stutt við íslenska bankakerfið með því að koma á framfæri upplýsingum sem við töldum góðar og réttar um bankakerfið, að það stæði tiltölulega traustum fótum, það hefði ekki tekið þátt í þessum „sub-prime lánum“, eiginfjárstaðan væri góð o.s.frv. Það var kannski þetta sem var verið að koma á framfæri við okkar fulltrúa erlendis.“  Ingibjörg Sólrún hafi auk þess lýst því yfir í innlendum sem erlendum fjölmiðlum að staðið yrði við bak bankanna af hálfu íslenska ríkisins.  Nefndin taldi því ástæðu til að kanna hvort Ingibjörg Sólrún hafi orðið sek um vanrækslu með því að gefa slíkar yfirlýsingar án þess að hafa mat á því hver geta ríkissjóðs væri til að styðja við fjármálafyrirtækin.

Um þetta segir Ingibjörg meðal annars: „Sem utanríkisráðherra hafði ég enga aðstöðu í krafti embættis til þess að láta gera sjálfstæða rannsókn á stöðu bankanna og getu ríkissjóðs til að standa við bakið á þeim. Í samræmi við langa og athugasemdalausa starfsvenju voru slíkar upplýsingar sóttar í fagráðuneyti.“

Segir gögnum hafa verið haldið frá sér
Auk þess að ekki hafi verið í verkhring utanríkisráðherra að bregðast við segir Ingibjörg að gögnum hafi verið haldið frá sér.

„Hitt liggur nú fyrir að mér voru hvergi nærri kynnt öll gögn sem fyrir lágu innan stjórnkerfisins á þeim tíma sem um ræðir, sbr. t.d. minnisblað Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins um úrræði stjórnvalda gegn óróleika á fjármálamörkuðum, dags. 1. apríl 2008, og vinnuskjal Seðlabanka Íslands um aðkallandi ákvarðanatöku stjórnvalda vegna hættu á fjármálaáfalli, sem sent var samráðshópi um fjármálastöðugleika og viðbúnað þann 7. júlí 2008. Vekur þetta sérstaka athygli þegar þess er gætt að ég sat fundi með stjórn Seðlabankans þann 1. apríl 2008 og þann 8. júlí 2008. Þetta varð mér þó ekki ljóst fyrr en síðar og að verulegu leyti fyrst í vinnu minni við þessi andmæli.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Grétu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næst mest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á manninn þar sem hann hékk á klettanös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvísjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigur þess mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19 landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvísjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú höfuðborg Aserbaídsjan og var þeim Jónsa og Grétu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Rockwood fellihýsi
Rockwood 10 feta, árgerð 2007. Fortjald, sólarsella, 2 gaskútar. Skoðað 2012. Ve...
Nýleg springdýna 153 cm. á breidd.
FÆST Á AÐEINS 10.000. UPPL. Í SÍMA. 8562418 Í DAG OG NÆSTU DAGA. ...
Galeon 610
Mjög vel með farinn 5.9 m með Yamaha F150 (150hp) og kerru til sölu. 5.9 mil...
Sérsmíðuð garðhúsgögn
Til sölu sérsmíðuð garðhúsgögn úr gagnvarini furu upplýsingar í síma 8694479 og ...
 
15096 nátthagi 9 ríkiskaup
Til sölu
Tilboð óskast í f...
Sýslumaðurinn í reykjavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Ný útboð
Tilboð - útboð
ÚTBOÐ Reykjavíkurborg Innkaupaskri...
Samkoma
Félagsstarf
Samkoma, sunnudag kl. 17 Ken Lock...