Fjórðungur heimila enn í vanda

Nær fjórðungur íslenskra heimila glímir enn við greiðsluvanda þrátt fyrir aðgerðir stjórnvalda. stækka

Nær fjórðungur íslenskra heimila glímir enn við greiðsluvanda þrátt fyrir aðgerðir stjórnvalda. mbl.is/Golli

Þrátt fyrir aðgerðir stjórnvalda má telja líklegt að um 23% skuldsettra heimila, nær 24.000 heimili glími enn við greiðsluerfiðleika.
Þetta kom fram á málstofu Seðlabanka Íslands um skuldastöðu heimila hér á landi og hverju aðgerðir í þágu heimila hafa fengið áorkað.

Á málstofunni var farið yfir hvaða áhrif greiðslujöfnunar íbúðalána og höfuðstólslækkun bílalána, hefði á getu heimila til að standa undir bæði greiðslubyrði lána og framfærslu. Voru sagðar vísbendingar um að þær aðgerðir hlutfall þeirra heimila sem eru á mörkum þess að geta staðið undir greiðslubyrði og framfærslu um 4-5%. Enn séu þó til staðar óvissuþættir um stöðu heimilanna og hverju þau úrræði sem þegar eru komin fram hafi skilað.

Árið 2008 jókst fjöldi þeirra heimila ört, sem náði ekki endum saman eða var á mörkum þess. Þrátt fyrir frystingu lána var nær fjórðungur heimila á mörkum þess að ná endum saman um mitt síðasta ár og líklegt er að allt að 28% heimila hefðu átt í verulegum greiðsluerfiðleikum strax í kjölfar bankahrunsins hefði lánafrysting ekki komið til. 
Þegar í byrjun árs 2008 voru komnar fram vísbendingar um að hluti heimila hafi skuldsett sig verulega. 

Hverjir eru í mestum vanda?
Bankahrunið kom harðast niður á þeim heimilum sem voru með gengis-tryggð íbúða- eða bílalán en um þriðjungur þeirra heimila eru á mörkum þess að ná endum saman. Heimili í greiðsluvanda bera um 42% heildarbílaskulda og 27% íbúðarlána og eru bílalánin talin stór þáttur í að skapa þann greiðsluvanda sem þau glíma við.

Barnafólk er einnig líklegra til að vera í meiri vanda en barnlaus heimili. En um 27% hjóna með börn og þriðjungur einstæðra foreldra glíma við að láta enda ná saman.

Einnig þykir ýmislegt benda til þess að um 40% barnafólks sem tók lán á síðari hluta uppsveiflunnar séu líklegri til að vera í greiðsluvanda og á mörkum þess að endar nái saman.

Eins og áður hefur komið fram eru, tilheyra þau heimili sem bera þyngstu greiðslubyrðina oft tekjulægstu hópunum. Stærstur hluti þeirra heimila sem á í greiðsluvanda er með ráðstöfunartekjur undir 250 þús. kr. á mánuði.

Hæst hlutfall þeirra heimila sem eiga í greiðsluvanda virðist vera að finna í nýjum hverfum sem byggð voru á tímum þenslunnar.

Tengsl milli aldurs og greiðsluvanda
Tengsl virðist vera á milli aldurs lántakenda og hlutfalls heimila í vanda. Í yngstu hópunum er hæst hlutfall þeirra sem eiga í greiðsluvanda. Um 47% á aldrinum 18-24 ára, 32% á aldrinum 24-29 ára og 26% á aldrinum 30-39 ára. Hins vegar kemur fram að taka þurfi tillit til þess að tekjur námsmanna í yngstu hópunum geti verið vanmetnar, auk þess sem líklegt sé að hluti þeirra búi enn í heimahúsum.


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Grétu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næst mest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á manninn þar sem hann hékk á klettanös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvísjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigur þess mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19 landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvísjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú höfuðborg Aserbaídsjan og var þeim Jónsa og Grétu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
DÍSEL BMW 525 station, sjálfskiptur, nýskoðaður 2013
Til sölu Bmw 525 dísel station nýskráður 4.12.2002, nýskoðaður 2013, sjálfskiptu...
GLÆSILEGIR
GLÆSILEGIR Teg. MYSTERY - Hægt að nota ÁN HLÝRA - Glæsileg blúnda, fæst í A, B, ...
Húsnæði með bílskúr óskast í sumar.
Húsnæði með bílskúr óskast í júní til ágúst, í Rvík - Hafnarfj. 3-5 svefnherb., ...
SANDBLÁSTURFILMUR
Sandblásturfilmur í öllum stærðum og gerðum fyrir heimili og fyrirtæki. Sendið f...
 
Starfsmaður í mötuneyti
Önnur störf
Starfsmaður í mötuneyti Morgunblaðið ...
Bifreiðauppboð
Uppboð
DT-195 DT-767 EB-064 EF-921 EK-095 ...
Kynning skipulagsmála í rangárþingi eystra

Kynning skipulagstillöguí Rangárþin...
Lausar kennarastöður við leik- og grunns
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar kennarastöður við leik...