Hluttekningarbók opnuð vegna flugsslyssins í Smolensk
Hluttekningarbók hefur verið komið fyrir í Fjölvali á Patreksfirði vegna hins hörmulega flugslyss er varð í Smolensk í Rússlandi á laugardag þar sem pólsku forsetahjónin og helstu ráðamenn létu lífið.
Bókin mun liggja frammi í versluninni Fjölval fram á laugardag. Öllum
þeim sem vilja veita pólsku þjóðinni hluttekningu er bent á að skrifa
nafn sitt í bókina. Bókin var formlega opnuð. Formáli bókarinnar
hljóðar svo: „Við undirrituð vottum aðstandendum þeirra sem fórust í
hinu hörmulega flugslysi laugardaginn 10. apríl 2010 í Smolensk í
Rússlandi, innilegustu samúð okkar og pólsku þjóðinni allri. Megi
almáttugur Guð koma til ykkar með blessun sína og huggun í þessari
miklu sorg.“
Á pólsku hljóðar formalin svona: „My niżej
podpisani łączymy się w bólu z rodzinami i bliskimi tych którzy zginęli
tragicznie w katastrofie polskiego samolotu prezydenckiego w sobotę 10
kwietnia 2010 roku w Smoleńsku, oraz z całym Polskim Narodem. Niech Bóg
Wszechmogący wspiera Was Swoim Błogosławieństwem w tych bolesnych
chwilach. Z przyjacielskimi pozdrowieniami.“
Framámenn í
Vesturbyggð skrifuðu fyrstir í bókina er hún var formlega opnuð í dag.
Má þar nefna sr. Leif Ragnar Jónsson sóknarprest í Vesturbyggð, sem
flutti huggunarorð til viðstaddra, Úlfar Lúðvíksson sýslumaður, Úlfar
Thoroddsen forseti bæjarstjórnar, Ragnar Jörundsson bæjarstjóri, Jónas
Sigurðsson aðstoðar yfirlögregluþjónn og Skjöldur Pálmason
framleiðslustjóri Odda. Þá má geta þess að Elzbieta Kowalczyk flutti
nokkur orð á pólsku til samlanda sinna.
Annað kvöld kl. 20.00
fer fram minningarathöfn í Patreksfjarðarkirkju vegna þeirra Pólverja
sem fórust í slysinu. Fólk er hvatt til að mæta til
minningarathafnarinnar og sýna samhug í verki.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































