Hótaði lögreglurannsókn
Hannesi Smárasyni hefur ætíð neitað því að nokkuð hafi verið athugavert við tilfærslur á fjármunum Icelandair. Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Ragnhildur Geirsdóttir, forstjóri Icelandair, hótaði Kaupþingi með lögreglurannsókn vegna fjármuna sem hurfu út af reikningi félagsins í Kaupþingi í Lúxemborg. Eftir að þessa hótun skiluðu fjármunirnir sér inn á reikninginn.
Hannes Smárason, stærsti eigandi Icelandair, er talinn bera ábyrgð á því peningarnir voru færðir af reikningi félagsins.
Þessar upplýsingar komu í skýrslu sem Inga Jóna Þórðardóttir, fyrrverandi stjórnarmaður Icelandair, gaf hjá rannsóknarnefnd Alþingis en Inga Jóna sagði af sér í stjórninni eftir að þetta mál kom upp.
Hún segist hafa búið sig undir að svara spurningum á aðalfundi FL Group um málið, en enginn hafi spurt. Hún ræddi við nokkra af eigendum félagsins um þetta mál og hvort ekki væri rétt að fá þessa hluti á hreint, en þeir hefðu ekki verið tilbúnir að taka slaginn við stjórnarformanninn.
„Vel má vera að stjórnarmenn hafi talið sig lausa allra mála með því að segja af sér. Hafi þeir hins vegar talið félaginu glannalega stjórnað og að auki haft grun um fjármálamisferli bar þeim siðferðileg skylda til að upplýsa opinberlega um stöðu mála. Sama gildir um forstjórann sem hvarf stuttu síðar úr starfi hljóðalaust. Um var að ræða fyrirtæki á markaði sem að auki gegndi mikilvægu samfélagslegu hlutverki – ábyrgð þeirra var ekki aðeins gagnvart stærstu hluthöfunum,“ segir í skýrslu rannsóknarnefndarinnar.
Styrmir Gunnarsson, þáverandi ritstjóri Morgunblaðsins, sagði við rannsóknarnefndina að hann hefði fengið upplýsingar um málið og skrifuð hafi verið ítarleg fréttaskýring um það. Hann óttaðist hins vegar að birting þess gæti kallað yfir blaðið skaðabótamál því í fréttinni voru miklar ásakanir.
„En til þess að birta þetta þurftum við eina staðfestingu. Við þurftum staðfestingu á því að þetta hefði gerst nákvæmlega svona. Ég vildi ekki birta þetta nema við hefðum [hana] frá einhverjum aðila sem þekkti málið innan Flugleiða. Svo ég talaði við unga stúlku sem þekkti vel til mála og leitaði eftir því að fá staðfestingu hennar og hún tók því mjög vel. Svo einn góðan veðurdag þegar ég ætlaði að fá þetta endanlegt og ganga frá þessu þá var tilkynnt að hún hefði látið af störfum og hefði fengið laun í fimm ár. Svo sagði hún mér að hún gæti því miður ekki staðfest þetta.“
Að mati Styrmis segir þetta mikla sögu um það hvernig hlutirnir gengu fyrir sig.
Bloggað um fréttina
-
Ómar Ragnarsson Kemur fram í dagsljósið að hluta til. -
Axel Jóhann Hallgrímsson Er ekki loks komin skýring... -
S i g u r ð u r Sigurðarson Vakti litla athygli á sínum tíma
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 20. apríl 2010, Innlent Staðfestir millifærslu frá FL
- Laugardagur, 9. maí 2009, Innlent Neikvæðar horfur hjá Landsvirkjun að mati S&P
- Fimmtudagur, 16. apríl 2009, Innlent Vill að yfirkjörstjórnarmenn víki
- Laugardagur, 24. apríl 2010, Innlent Flugi haldið uppi frá Akureyri
- Miðvikudagur, 24. nóvember 2010, Innlent Gert að bera tjón af hlutabréfakaupum
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“





































