Jónas Fr.: Staðan ekki slæm

Jónas Fr. Jónsson forstjóri Fjármálaeftirlitsins

Jónas Fr. Jónsson forstjóri Fjármálaeftirlitsins

Jónas Fr. Jónsson, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, lét þeim Geir H. Haarde , forsætisráðherra og Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra, í té gögn þann 10. mars 2008 sem sýndi að staða bankanna leit ekki illa út. Með þessi gögn í farteskinu fór Geir til New York þar sem hann hélt erindi á ráðstefnu Íslensk-ameríska verslunarráðsins. Þetta kemur fram í 19. kafla skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis í sjötta bindi skýrslunnar. <ð> Í skýrslu Geirs fyrir rannsóknarnefndinni kemur fram að gögnin hafi Jónas sjálfur notað á ráðstefnu nokkrum dögum áður.

Geir segir að Jónas hefði sagt við sig og Árna: að staða bankanna liti ekki illa út, hvorki varðandi eignir, eigið fé, rekstrarafkomu né lausafé næsta tæpa árið. Hann sagðist „ekki telja að í bönkunum væru nein loftgöt [...] nema ef upplýsingum væri með glæpsamlegum hætti haldið frá eftirlitinu, sem hann taldi afar ólíklegt.“ Geir sagðist hafa haldið til New York á ráðstefnu Íslensk-ameríska verslunarráðsins tveimur dögum síðar með þessar upplýsingar í farteskinu.

Við skýrslutöku sagði Árni M. Mathiesen að fundurinn hefði farið leynt. Síðan bætti hann við: „Já og það er allt svona svolítið viðkvæmt ef að ráðherrar eru að kalla fyrir sig forstöðumenn stofnana annarra ráðuneyta. Þannig að maður er ekkert svo sem alveg að gera, var ekki að gera það á hverjum degi, þó svo að það hafi auðvitað komið fyrir.“

Ég man nú eftir þessum fundi...

Við skýrslutöku ræddi Jónas Fr. Jónsson um framangreindan fund. Fundinum lýsti hann með eftirfarandi orðum: „En hérna það sem ég í sjálfu sér fór bara yfir var bara: Ókei, við erum með, þetta er uppgjörið þeirra, þetta er staðan, eins og hún lítur út núna miðað við eiginfjárhlutfall og annað slíkt, þá virðist grunnurinn vera í lagi en við erum auðvitað með lausafjárþrengingar í heiminum, það er það sem við þurfum að búa okkur undir.

[...] Ég hitti þá, eins og ég skildi, Geir var að fara á fund hjá Íslenska verslunarráðinu og hérna eitthvað að ræða það, ég held að ég hafi látið hann hafa glærur ef ég man rétt eða eitthvað svoleiðis, glærur sem við höfðum verið búin að taka saman. [...] Já, ég hafði bara áhyggjur, ég man nú eftir þessum fundi hjá honum hvað, fyrir meira en ári síðan, var einfaldlega þetta að það væri þessi lausafjárþrenging í heiminum, náttúrulega það sem við þyrftum að búa okkur undir. Það voru svona þessar almennu áhyggjur. Við fórum hins vegar, eins og ég segi, aðeins í gegnum glærurnar og við fórum í gegnum hvernig uppgjör þeirra hefði verið.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 9. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Grétu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næst mest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á manninn þar sem hann hékk á klettanös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvísjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigur þess mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19 landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvísjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú höfuðborg Aserbaídsjan og var þeim Jónsa og Grétu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
DÍSEL BMW 525 station, sjálfskiptur, nýskoðaður 2013
Til sölu Bmw 525 dísel station nýskráður 4.12.2002, nýskoðaður 2013, sjálfskiptu...
GLÆSILEGIR
GLÆSILEGIR Teg. MYSTERY - Hægt að nota ÁN HLÝRA - Glæsileg blúnda, fæst í A, B, ...
Húsnæði með bílskúr óskast í sumar.
Húsnæði með bílskúr óskast í júní til ágúst, í Rvík - Hafnarfj. 3-5 svefnherb., ...
SANDBLÁSTURFILMUR
Sandblásturfilmur í öllum stærðum og gerðum fyrir heimili og fyrirtæki. Sendið f...
 
Lausar kennarastöður við leik- og grunns
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar kennarastöður við leik...
Administrative assistant
Sérfræðistörf
Icelandic Institute for Intelligent Mac...
Kennarasöður
Grunn-/framhaldsskóla
Kennarastöður Grunnskóli...
Opinn fundur
Félagsstarf
Félag sjálfstæð...