Neyslumenning og óhóf
Sérstakur hópur, sem fjallaði um siðferði og starfshætti í tengslum við fall íslensku bankanna, segir í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis að óhætt sé að segja að neyslumenning og óhóf hafi einkennt íslenskt samfélag um langa hríð og það náði hæstu hæðum í „góðærinu“.
„Það er greinilega fjarri mörgum Íslendingum að þeir þurfi að temja sig, aga og setja hófstillingu í öndvegi, enda þróaðist íslenskt samfélag í þveröfuga átt undanfarin ár. Óhófið birtist með ýmsum hætti, ekki síst í boðsferðum valinna viðskiptavina. Bankarnir stóðu fyrir miklum veislum við opnun útibúa. Heilu flugfarmarnir af Íslendingum voru fluttir út til að taka þátt í herlegheitunum og var ekkert til sparað," segir í skýrslunni.
Vitnað er til gagna frá bönkunum sem buðu stærstu viðskiptavinum og lykilstarfsmönnum í laxveiði og sérvaldar lúxusferðir út í heim.
„Ég fékk að fara í eina svona ferð, það var einhver stjórnendahópur, og ég hef aldrei upplifað mig eins og kóng en það var iPod þegar þú vaknaðir og það var bók þegar þú fórst að sofa og viskíflaska þegar þú vaknaðir. Þetta var samt „low-budget“ sko," er haft eftir Kristni Arnari Stefánssyni í skýrslunni.
Haft er eftir Sigurjóni Þ. Árnasyni, fyrrverandi bankastjóra Landsbankans, að ferðirnar hafi verið ótrúlega ódýrar miðað við hvað þær skiluðu.
„Og þess vegna er þetta ótrúlega ódýr markaðssetning gagnvart öllu þessu fólki sem þú gerir ráð fyrir að sé verðmætustu mögulegu kúnnar sem þú hefur, sem er venjulega allt ríkasta fólk landsins og fyrirtæki og aðilar í forsvari fyrir stærstu fyrirtæki en með skipulegum hætti var bannað að bjóða pólitíkusum.“
„[Þ]að er enginn lífeyrissjóður í einni einustu af þessum ferðum sem þú ert að lýsa, það er, þeim var ekki boðið í þessar ferðir sem þú ert að lýsa núna.“
„Það sem þú gerðir, þú bauðst rosamörgum, svo fylltirðu upp í með starfsmönnum, skilurðu? Þú keyptir allt miðað við ákveðinn fjölda, svo býðurðu öllum og þú veist að svona líkleg nýting er ákveðin prósenta og svo ertu búinn að, svo býðurðu ákveðnum lykilstarfsmönnum, [...] þú vilt að starfsmenn séu að mingla við kúnnana, er, til þess að tryggja, mynda tengsl við þá, það er þá hugsunin, og menn kynnist inn í bankann, það er hugsunin, og síðan þegar eru einhver sæti laus þá bara fylltirðu með fleiristarfsmönnum.
Og þetta er ekki dýrt miðað við það sem þú getur fengið út úr þessu. Þið gleymið því alltaf, að ef einhver er að versla hlutabréf fyrir 1 milljarð, þá, bíddu, þá, hvað heldurðu að við tökum í prósent fyrir það? ½%? Hvað færðu margar, hvað færðu mikinn pening fyrir það að selja einhvern 1 milljarð í hlutabréfum? Þá færðu 5 milljónir.“





































