Innlent
| mbl
| 12.4.2010
| 12:42
| Uppfært
13:06
Ný áhætta með söfnun erlendis
Tilkoma Icesave reikningana og sá mikli árangur sem Landsbankinn náði strax á fyrri hluta árs 2007 með söfnun innlána á þá, olli verulegri breytingu á fjármögnun bankans og íslenska bankakerfisins. Hinir stóru bankarnir tveir hófu þá einnig að safna erlendis og varð þá grundvallarbreyting á fjármögnun sem hafði í för með sér nýjar áhættur gagnvart íslensku fjármálakerfi.
Þetta kemur fram í ályktun rannsóknarnefndar Alþingis í 18. kafla 6. bindis skýrslu nefndarinnar.
Vakti það sérstaklega athygli nefndarinnar, að þrátt fyrir gríðarlegan vöxt á Icesave reikningana árið 2007 hafi við rannsóknina ekki komið fram nein gögn eða upplýsingar um að sú staða hafi á því ári orðið íslenskum stjórnvöldum, þ.m.t. Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitinu, tilefni til að bregðast við þessum auknu innstæðum á Icesave reikningunum með tilliti til áhættuþátta gagnvart íslenska fjármálakerfinu.
Nefndin bendir á að um mitt ár 2007 námu innstæður á Icesave reikningum um 4 milljörðum punda, og að viðbættum heildsöluinnlánum erlendra aðila í sama útibúi námu innlán í útibúi Landsbankans í London 5 milljörðum punda. Í ljósi þess að gjaldeyrisvaraforði Seðlabanka Íslands nam einungis um 1,2 milljörðum punda á þessum tíma, má telja víst að Seðlabankinn hefði ekki getað gegnt hlutverki sínu sem lánveitandi til þrautavara fyrir Landsbanka Íslands ef á reyndi.
Þar sem Landsbankinn var kerfislega mikilvægur banki blasti við að áhlaup á innlánin í Bretlandi myndi ógna fjármálastöðugleika á Íslandi. Nefndin telur að Seðlabanka Íslands hafi mátt vera þetta ljóst eigi síðar en um mitt ár 2007.
Þessi vitneskja hefði átt að vera Seðlabankanum tilefni til aðgerða til að draga úr þeirri hættu sem gat steðjað að fjármálastöðugleika Íslands.

Tengdar fréttir — Icesave
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 12. apríl 2010, Innlent Ákvörðun um Icesave í Hollandi nær óskiljanleg
- Mánudagur, 12. apríl 2010, Innlent Seðlabanki brást ekki við ábendingu
- Þriðjudagur, 13. apríl 2010, Innlent Stjórn Seðlabanka sögð hafa sýnt vanrækslu
- Mánudagur, 12. apríl 2010, Innlent Mismunandi afstaða til innlána
- Mánudagur, 8. júní 2009, Innlent Pólitísk staða ekki nýtt
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
Háfur frá Eirvík.
Elica Stone, til sölu.
Upplýsingar í síma 664 1162 eða shanna@pasima.net....
BÆKUR ,TÍMARIT,MATREIÐSLUBÆKUR OG LP. PLÖTUR TIL SÖLU
https://bland.is/messageboard/messageboard.aspx?badvid=28470738&showAdvid=284707...
Furminator kambarnir eru til í öllum stærðum
Ný sending af Furminator kömbunum vinsælu 4 stærðir í boði fyrir öll gæludýr sma...
Tjaldvagnaleiga
www.123.is/tjaldvagnaleiga...