Ólíkar lýsingar af kvöldverðarboði
Segir Sigurður að þar hafi Davíð sagt við hann að ef Kaupþing myndi halda fast við að fara yfir í evrur þá myndi hann sjá til þess að Kaupþing yrði gjaldþrota. Davíð var spurður að því við skýrslutökuna hvort rétt sé að hann hafi sagt að hann myndi „taka bankann niður“ neitaði Davíð því enda myndi hann aldrei nota slíkt orðalag.
Fjallað er um kvöldverðarboðið í 19. kafla skýrslunnar (bls. 89-91 í 6. bindi)
Langar og harðar umræður
Í skýrslu Sigurðar Einarssonar, stjórnarformanns Kaupþings, fyrir rannsóknarnefnd Alþingis kom fram að honum og eiginkonu hans hefði verið skipað til borðs með Davíð Oddssyni. Við það borð hefðu einnig setið utanríkisráðherra, fjármálaráðherra og aðstoðarkona seðlabankastjóra. Spenna hefði verið í loftinu.
Í skýrslu Sigurðar segir síðan: „Seðlabankastjóri byrjar strax að ræða það við utanríkisráðherra og fjármálaráðherra að það sé alveg nauðsynlegt að sameina Fjármálaeftirlit og Seðlabankann, bara að leggja Fjármálaeftirlitið inn í Seðlabankann.
Ég sá bara að fjármálaráðherra sökk niður í sætinu, hafði einhvern tíma upplifað þessa umræðu áður. Og svo spyr seðlabankastjóri, eða hvort það var utanríkisráðherra eða seðlabankastjóri: Hvað segir þú um það Sigurður? Og ég sagði: Ja, það væri kannski ágætishugmynd þegar væri búið að taka peningastjórnina af Seðlabankanum og búið að taka upp evruna, þá hefðu þeir eitthvað að gera með því að sinna Fjármálaeftirlitinu. Og þetta svar mitt mæltist ekki vel fyrir og síðan leið og beið og maturinn var búinn og það var ekki einu sinni komið kaffi, þá stóð fjármálaráðherra upp og sagði: Ah, það er best að ég fari eitthvað annað. Og utanríkisráðherra líka.
Það endaði með því að ég sat þarna einn með seðlabankastjóranum og urðu langar og mjög harðar umræður á milli okkar og m.a. þar sem hann lét þessi orð falla að ef við ætluðum að halda fast við það að fara yfir í þessar evrur þá skyldi hann sjá til þess að við yrðum gjaldþrota.
Þetta er í fyrsta skipti sem ég hef verið að „referera“ þessi orð og ætlaði aldrei að gera þau að neinu efni. [...] Ég man ekki en ég held að ég hafi ekki svarað neinu. Svo endaði þessi samkoma þannig að framkvæmdastjóri alþjóðasviðs sem var þarna var að toga í öxlina á seðlabankastjóra og var að reyna að koma honum heim, og konan mín togaði í öxlina á mér og var að reyna að koma mér heim og aðstoðarkonan sat bara uppgefin í horninu.“
Reynt að dramatísera hlutina
Í skýrslu Davíðs Oddssonar fyrir rannsóknarnefnd Alþingis kom eftirfarandi fram um fyrrgreind orðaskipti hans og Sigurðar Einarssonar: „Ég hef nú ekkert tjáð mig um það, menn hafa reynt að gera þetta að fjölmiðlamáli heilmiklu og reynt að „dramatísera“ það, enda hefur nú öll sú umræða, m.a.s. staðsetningin, verið vitlaus að þetta hafi farið fram í hótelanddyri eða hóteldyrum en við áttum ágætis samtöl, ég gæti bara nefnt það, þetta var á veitingastað sem heitir – þess vegna man maður það – heitir Perlan og ég man nú ekkert yfirleitt eftir veitingastöðum en ég mundi þetta út af þessu, þessari tengingu við Perluna okkar hér og það hefur verið venja á þessum fundum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins að Seðlabankinn byði íslenskum þátttakendum til samkvæmis, kvöldsamkvæmis, í minni tíð hefur það gerst þarna og í Singapúr.
Þetta er nú töluverður hópur manna og einnig er boðið yfirleitt íslenskum starfsmönnum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans svona í þetta samkvæmi og það var einnig gert núna eftir því sem ég man best, ég man nú ekki eftir öllum sem voru þarna með mér. Og þó að ekki sé raðað til borðs þá eru svona menn pikkaðir við borð og við þetta borð, sem þarna er um rætt, sátu fyrir utan mig Sigurður Einarsson og hans kona, ég man ekki hvað hún heitir reyndar, Árni Mathiesen fjármálaráðherra, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra og Lilja Alfreðsdóttir var þarna við borðið. Ég held að þetta sé upptalið svona við borðið, nú verð ég að hafa fyrirvara á því.
En hérna, þar var setið og margt rætt og síðan þegar að, þegar að hinu formlega borðhaldi var lokið, þá hurfu – jú, Sturla Pálsson held ég að hafi þá komið að borðinu, minnir mig, eftir borðhaldið – og þar sátu þá eftir ég – konan mín var ekki þarna – og þessi ágætu hjón og Lilja og Sturla hafa verið við þetta borð. Og það var auðvitað margt rætt, eins og er í svona oft kvöldverðarboðum.“
Skoðanaskiptin snérust um mismunandi viðhorf til gjaldmiðla
Aðspurður hvort Davíð hefði viðhaft þau orð, sem til hefði verið vitnað í fjölmiðlum, um að hann myndi „taka bankann niður“ svaraði Davíð: „Ég held að ég hafi nú reyndar svarað þessu opinberlega að þetta er orðalag sem ég hef aldrei á ævi minni nefnt og notað. Því að þetta er einhver enskusletta sem að gæti verið að Sigurði sé tamt en – væntanlega „take the bank down“ væntanlega, þetta er orðalag sem ég mundi aldrei nota.
[...] Skoðanaskiptin snerust aðallega um mismunandi viðhorf okkar til þess hvort að íslenskir bankar ættu að skrásetja sig í erlendum gjaldmiðli og það var búið að halda því að með miklum eða skrá starfrækslugjaldmiðilsins, svo maður reyni nú að vera svolítið nákvæmur í þessu.“






































