Ótæk vinnubrögð
Rannsóknarnefnd Alþingis segir í skýrslu sinni, sem kom út í dag, að vinnubrögð yfirvalda við viðlagaundirbúning með það að markmiði að verja fjármálakerfi landsins og aðra grundvallarhagsmuni ríkis og þjóðar í byrjun október 2008 hafi verið ótæk.
„Þau voru á engan hátt í samræmi við það hvernig þjóðir með þróaða fjármálamarkaði og stjórnsýslu haga almennt starfsháttum sínum," segir rannsóknarnefndin í skýrslunni.
Fram kemur, að eftir að ljóst varð að aðgerðir ríkisstjórnarinnar í málum Glitnis undir lok september 2008 höfðu ekki borið árangur hafi tekið við ákveðið stjórnleysi við í viðbúnaðarmálum ríkisins. Seðlabanki og ríkisstjórn gengu ekki í takt og yfirstjórn skorti. Þá var ekki tekið af skarið um hvert stefna bæri.
Með því að kveðja til hóp sérfræðinga að morgni 4. október 2008 tók forsætisráðherra loks ákvörðun og lagði málið í ákveðinn farveg. Var þar um að ræða þriðja hópinn á skömmum tíma sem hafði verið falið að vinna að viðlagaundirbúningi.
Samráðshópur stjórnvalda hafði fengist við viðlagaundirbúning frá 21. febrúar 2006 til 3. október 2008. Hópur sem Seðlabankinn kvaddi til vann að viðlagaundirbúningi frá 30. september til 3. október 2008. Hinn nýi sérfræðingahópur forsætisráðherra vann síðan að viðlagaundirbúningi frá 4. október 2008. Í upphafi fékk hann þó ekki aðgang að öllum afrakstri vinnu hinna hópanna tveggja.
„Til marks um það hversu lítill grunnur var lagður að þessu starfi má nefna að það var fyrsta verkefni hópsins að prenta út ársreikninga stóru fjármálafyrirtækjanna á starfsstöð eins meðlima hópsins í Háskólanum í Reykjavík. Framangreind vinnubrögð yfirvalda við viðlagaundirbúning með það að markmiði að verja fjármálakerfi landsins og aðra grundvallarhagsmuni ríkis og þjóðar voru ótæk," segir rannsóknarnefndin.
Neyðarlög í miklu tímahraki
Rannsóknarnefndin segir, að þegar kom að samningu hinna svokölluðu neyðarlaga, sem sett voru 6. október 2008, megi í stórum dráttum segja að það eina sem kom sýnilega að notum úr vinnu samráðshóps stjórnvalda hafi verið þau drög að ákvæði, sem varð að 100. grein laga um fjármálafyrirtæki.
„Í grófum dráttum voru önnur ákvæði neyðarlaganna samin dagana 4.–6. október 2008 í miklu tímahraki. Mörg hver voru afar flókin og yfirgripsmikil. Þeir sem sömdu þau nutu ekki aðstoðar sérfræðinga á sviðum sem mikið hlaut þó að reyna á við útfærslu frumvarpsins, t.d. á sviði gjaldþrotaréttar," segir rannsóknarnefndin.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 5. september 2009, Innlent Krefst heiðarleika af hálfu stjórnvalda
- Þriðjudagur, 13. apríl 2010, Innlent Vildu refsa Íslendingum
- Þriðjudagur, 30. mars 2010, Innlent Ákvörðun S&P í samræmi við væntingar
- Mánudagur, 12. apríl 2010, Innlent Há lán til fjölmiðlamanna
- Laugardagur, 9. maí 2009, Innlent Neikvæðar horfur hjá Landsvirkjun að mati S&P
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“





































