Reiðilestur Davíðs yfir Tryggva Þór

Tryggvi Þór Herbertsson. stækka

Tryggvi Þór Herbertsson. Valdís Þórðardóttir

Því er lýst í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis, að Davíð Oddsson, þáverandi seðlabankastjóri, hafi hellt sér yfir Tryggva Þór Herbertsson, þáverandi efnahagsráðgjafa forsætisráðherra, í lok september 2008 þegar Tryggvi Þór lýsti efasemdum um að sú leið, sem til stóð að fara við að bjarga Glitni, væri ekki rétt.

„Þegar fundi með fulltrúum Glitnis lauk segist Tryggvi Þór Herbertsson hafa rætt við Geir og sagt að sér litist illa á fyrirliggjandi tillögu. Hafi Tryggvi lagt til að hann myndi ræða við Davíð og gera úrslitatilraun til að sannfæra hann um þetta. Síðan segist Tryggvi hafa beðið Davíð að ræða við sig undir fjögur augu. Hafi þeir því næst farið inn á skrifstofu Davíðs. Við skýrslutöku lýsti Tryggvi samtali sínu og Davíðs með eftirfarandi hætti:

„Ég var rétt byrjaður, þá trylltist hann, sagði að ég væri að grafa undan tillögum hans og sagði: „Þarna situr forsætisráðherra frammi og skelfur eins og lauf í vindi og getur ekki tekið ákvörðun. Hann hlustar á þig og þú ert að grafa undan þessu. Ef þetta gengur ekki fram mun ég persónulega sjá til þess að þér verði ólíft á Íslandi það sem eftir er.“

Jafnframt sagði hann að ég skyldi ekki hræra í Össuri, þá skyldi hann eiga mig á fæti. Hann var vægast sagt tryllingslegur og mér féll gjörsamlega allur ketill í eldinn. Ég brást við með því að segja að við hefðum verið samherjar til margra ára, ég hefði ekkert annað í huga en framtíð landsins okkar, hann róaðist nokkuð við það en ég sá að hann hugsaði mér þegjandi þörfina.“

Davíð sagðist hafa verið Tryggva reiður

Rannsóknarnefndin bar þessi ummæli undir Davíð, sem sagðist vissulega hafa rætt við Tryggva undir fjögur augu. Hann hefði heyrt frá starfsmönnum Seðlabankans að Tryggvi hefði þetta kvöld meðan hann var í bankanum átt símtöl við Jón Ásgeir Jóhannesson þar sem hann hefði lýst fyrir honum tillögum Seðlabankans varðandi Glitni.

Davíð lýsti því fyrir nefndinni að hann hefði af þessum sökum verið Tryggva reiður og sagði að það gæti verið að hann hefði verið hvassyrtur í hans garð. Hann neitaði því hins vegar að hafa látið þau orð falla að hann myndi sjá til þess að Tryggva yrði ólíft á Íslandi. Þess í stað hefði hann sagt: „Og ég sagði við hann að ég mundi sjá til þess, ef hann héldi þessu áfram, að hann færi út úr húsinu og
það yrðu gefin fyrirmæli um það að hann færi ekki inn í það aftur. Ég held að Ísland hafi ekki verið, sko, hann gæti verið á Íslandi en þetta var skýringin.

Og hugmyndir hans, ég var hneykslaður á að hann skyldi vera að ræða af því að hann var í þeim símtölum líka, við Landsbankamenn út úr húsinu sem voru að senda okkur magnþrungnar dellutillögur. Og hann var að berjast fyrir því að við færum um nóttina í sameiningu að Landsbankanum og Glitni og þessu öllu saman sem enginn hafði heildarmynd yfir og var ekki nokkur vinnandi vegur og tóm endaleysa. Það var sú leið sem hann vildi fara.“

Var hringjandi í „kontakta" sína

Davíð sagði einnig: „Og þegar ég, ég held ég hafi nú ekki tekið svona til orða um Geir, það má vel vera í þessum ham öllum en það var nú þannig reyndar að Össur vildi ganga að þessu plani strax og lýsti því oft yfir, Geir var miklu meira  hikandi og ekkert svo sem við það að, yfir því að segja, en ég held að það hafi ekki síst verið þessi hræringur Tryggva í hinum, að það hafi verið fullt af öðrum tillögum. [...] Hann var gerandi með Milestone-mönnum í fullt af hlutum og átti að koma aftur til baka í þessa starfsemi. Mér fannst þetta allt saman mjög óþægilegt [...] og þegar var búið að segja mér þarna áður af mínum starfsmönnum að hann væri hringjandi út að lýsa við „kontakta“ sína í farsíma hvað við værum að ræða þarna inni, þá fannst mér það algjörlega forkastanlegt og undirstrika það sem ég, efasemdir mínar um það að hann gæti komið fram sem fulltrúi forsætisráðherrans gagnvart Seðlabankanum og ætlast til þess að við værum, sýndum honum fulla hreinskilni.

Ég algjörlega hins vegar kaupi það að í öllum þessum látum, að þá hlaut öll stjórnsýsla að fara fyrir lítið í þessum hræringum öllum, en það er samt sem áður, það var óþarfi að vera með eitthvað sem svona blasti við að gat ekki gengið. Og þetta fór í taugarnar á mér, en það getur vel verið að ég hafi verið of hérna hvassyrtur við hann þarna, en mér fannst satt best að segja, þetta var 10–20 manna fundur þar sem þeir voru að tjá sig, ráðherrarnir, og mér fannst óþægilegt fyrir Geir sem, hvað hann var hikandi og óviss og allt það, við hliðina á Össuri sem vissi miklu minna um málið sem var miklu ákveðnari í að fara þessa leið, sko, fljótt og eiginlega strax. Þannig að, og kannski hef ég kennt, að Tryggvi væri eins og maður segir að hræra í honum. Það getur vel verið að ég hafi kennt því um.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á manninn þar sem hann hékk á klettanös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvísjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigur þess mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19 landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvísjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú höfuðborg Aserbaídsjan og var þeim Jónsa og Grétu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
9 FM VANDAÐ BJÁLKAHÚS
9 fm vandað bjálkahús úr þéttum viði - fæst með eða án þakefnis. Verð kr. 374.90...
HÚSGÖGN,HEIMILISTÆKI, SKRAUTMUNIR OG FLEIRA TIL SÖLU.
Rococo sófasett, skrifstofuhúsgögn, rúm, ísskápar, þvottavélar, Þurrkarar, Nuddp...
Vw Golf 1.6 Highline 2003
VW Golf árg 2003 ekinn aðeins 112.000 km. búið er að skipta um tímareim. Ver...
58 fermetrar
Til leigu húsnæði á annari hæð í Dugguvogi 6 (Fossberg) Eitt rými með litlum el...
 
Skólastjóri hrafnatilsskóla
Sérfræðistörf
Mynd af auglýsingu ...
Ný útboð
Tilboð - útboð
ÚTBOÐ Reykjavíkurborg Innkaupaskri...
Tækniskólinn - atvinnuauglýsing
Önnur störf
Framúrskarandi kennarar óskast í ...
Starfsleyfisauglýsing
Tilkynningar
Mynd af auglýsingu ...