„Skiljið þið ekki hversu alvarlegt mál þetta er?“
„Skiljið þið ekki hversu alvarlegt mál þetta er?“ Þannig lýsti Jón Þór Sturluson, aðstoðarmaður þáverandi viðskiptaráðherra, orðalagi Alistair Darling, fjármálaráðherra, Bretlands, á fundi með Björgvini G. Sigurðssyni, þáverandi viðskiptaráðherra, 2. september 2008. Fundurinn var aðallega um Icesave.
Um fundinn er fjallað í 18. kafla 6. bindis skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Á fundinum voru einnig Jón Sigurðsson, stjórnarformaður Fjármálaeftirlitsins, Baldur Guðlaugsson,ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytis, Jónína S. Lárusdóttir, ráðuneytisstjóri viðskiptaráðuneytis, Jón Þór Sturluson, aðstoðarmaður viðskiptaráðherra, Áslaug Árnadóttir, skrifstofustjóri í viðskiptaráðuneyti og formaður stjórnar Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta, og Sverrir Haukur Gunnlaugsson, sendiherra í London.
Í skýrslunni segir að áhersla hafi verið lögð á málefni Landsbankans á fundinum. Sagði Jón Sigurðsson að FSA og Fjármálaeftirlitið væru sammála um að dótturfélagsvæðing Icesave reikninga Landsbankans væri öruggasta leiðin til að leysa málið. Hins vegar væri vonast eftir því að bresk yfirvöld nálguðust málið með raunsæjum hætti og sýndu nauðsynlegan sveigjanleika með hliðsjón af aðstæðum á fjármálamörkuðum.
Jón Sigurðsson ræddi einnig almennt um íslensk efnahagsmál. Vísaði hann í skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins þar sem fram hefði komið að horfur í efnahagsmálum á Íslandi til lengri tíma væru öfundsverðar. Þá hefðu bankarnir þrír staðist ströng álagspróf Fjármálaeftirlitsins um mitt ár 2008.
Á fundi samráðshóps forsætisráðuneytis, fjármálaráðuneytis, viðskiptaráðuneytis, Fjármálaeftirlitsins og Seðlabanka Íslands um fjármálastöðugleika og viðbúnað tveimur dögum síðar var rætt um fundinn með Darling.
Þótti ljóst að fjármálaráðherrann breski var með allar upplýsingar um málið. Hann gerði ráð fyrir að bresk yfirvöld myndu ábyrgjast innstæður að fullu og spurði svo hvert ætti að senda reikninginn. Þá þegar hafi Darling ekki miðað við 35.000 punda hámark innstæðutryggingar í Bretlandi heldur við heildarupphæðina.
Málið orðið mjög pólitískt í Bretlandi
5. september 2008 hringdi Clive Maxwell, starfsmaður breska fjármálaráðuneytisins, í Sverri Hauk Gunnlaugsson, sendiherra í London. Maxwell lýsti því að breski fjármálaráðherrann hafi orðið fyrir vonbrigðum með fundinn í London 2. september þar sem honum fannst fulltrúar íslenska ríkisins ekki hafa skilið alvöru málsins.
Maxwell minntist jafnframt á það að fjármálaráðherrann hefði lagt áherslu á hve pólitískt málið væri orðið, þar sem stöðugt væri verið að spyrja um viðbrögð úr þinginu. Það væri því mjög æskilegt að íslensk stjórnvöld gætu haft samráð við fjármálaráðuneytið með hvaða hætti þessum fyrirspurnum yrði svarað.







































