„Slær Harry Potter út“
„Rannsóknarskýrslan er í aðeins minna broti en A4 og er í mjúku bandi. Alls eru þetta ekki nema tvö þúsund blaðsíður og í níu bindum, sem bundin eru saman. Þannig að hvert bindi er á bilinu 200-250 blaðsíður sem er eins og lítil kilja, “ segir Bryndís Loftsdóttir, vörustjóri íslenskra bóka hjá Eymundsson. Hún var stödd á vörulager Forlagsins úti á Fiskislóð þegar blaðamaður mbl.is náði tali af henni.
Sagðist hún giska á að bindin níu séu alls um 20 sm á breidd og vegi samtals 2,5 kg. „Fyrirfram hafði ég efasemdir um að selja ætti rannsóknarskýrsluna í Leifsstöð, en eftir að hafa séð skýrsluna tilsýndar sýnist mér fólk fara létt með að hafa hana í handfarangri. Hún er nefnilega minni en ég held að margir hafi haldið.“
Að sögn Bryndísar ríkir mikil spenna á vörulagernum vegna útkomu rannsóknarskýrslunnar. „Hér eru öryggisverðir út um allt til þess að gæta skýrslunnar og starfsmenn fá aðeins að afgreiða pantanir í innsigluðu rými,“ segir Bryndís og bætir við að afgreiðslan og eftirvæntingin og stemningin í tengslum við útkomu rannsóknarskýrslu Alþingis slái Harry Potter út og þá sé mikið sagt.
„Á slaginu kl. 10.15 verður hliðið opnað og þá getum við byrjað að fylla bílana. Það lítur út fyrir að öll afgreiðsla geti gengið snurðulaust fyrir sig þegar hliðin opna,“ segir Bryndís og tekur fram að fyrstu eintökin verði væntanlega ekki komin í búðir Eymundssonar í Austurstræti og á Skólavörðustíg.
„Við munum einnig leggja mikla áherslu á að koma bókum sem fyrst til Akraness, Ísafjarðar og Akureyrar með flugi,“ segir Bryndís. Aðspurð segist hún eiga von á því að um þúsund eintök af rannsóknarskýrslunni fari í dreifingu í búðum Eymundssonar í dag, en von sé á fleiri eintökum á næstu dögum.
„Það lítur út fyrir að skýrslan eigi að vera til í flestum búðum og efþað verður þurrð í einhverri búð þá ætti það bara að vera í einhverja klukkutíma,“ segir Bryndís.
Mikill áhugi hefur verið meðal almennings á rannsóknarskýrslunni og sem dæmi nefnir Bryndís að Eymundsson hafi selt 200 einstök af skýrslunni í forsölu á netinu.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 12. apríl 2010, Innlent Byrjað að selja skýrsluna
- Mánudagur, 3. maí 2010, Innlent Kristín nýr formaður Rithöfundasambandsins
- Fimmtudagur, 14. maí 2009, Innlent Leita í skáldsögur í kreppunni
- Laugardagur, 9. maí 2009, Innlent Neikvæðar horfur hjá Landsvirkjun að mati S&P
- Sunnudagur, 11. apríl 2010, Innlent Skýrslan slær glæpasögunum út
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“





































