Stærstu skuldarar bankanna

Robert Tchenguiz.

Robert Tchenguiz. ANDRE CAMARA

Stærsti skuldari í bönkunum í lok árs 2007 og í lok september 2008 er Robert Tchenguiz með 1,2 milljarða evra í lok árs 2007 og 2,1 milljarð evra við fall, sem er nokkurn veginn það sama og hóparnir sem Tchenguiz myndaði út frá 20% lágmarkseignarhaldi. Þetta er meðal þess sem kemur fram í 9. bindi skýrslunnar um krosseignatengsl og útlán bankanna til tengdra aðila.

Í lok árs 2007 er Jón Ásgeir í öðru sæti með tæpa 1,2 milljarða evra, næstum jafn mikið og Tchenguiz en við fall voru samanlagðar skuldir Jóns Ásgeirs undir milljarði evra og skipaði hann þá 3. sætið. Ólafur Ólafsson fer úr 3. sætinu 2007 með 670 milljónir evra í 2. sætið við fall með 1,1 milljarð evra sem er næstum tvöföldun milli ára.

„Einstaklingar sem tengjast Jóni Ásgeiri fjölskylduböndum færast ofar á listann sé miðað við vegnar skuldir félaga þeirra frekar en hóp myndaðan út frá 20% lágmarkseignarhaldi, segir í skýrslunni.

Foreldrar Jóns Ásgeirs, Ása K. Ásgeirsdóttir og Jóhannes Jónsson, eru í 5. og 7. sæti við lok árs 2007 og í 6. og 7. sæti við fall. Eiginkona Jóns Ásgeirs, Ingibjörg S. Pálmadóttir, er í 6. sæti 2007 en 9. sæti 2008. Í skýrslunni segir að það sem hér séu skuldir lagðar saman miðað við eignarhlut viðkomandi er hægt að leggja þær saman því eignarhlutirnir skarast ekki.

„Gervimaður í útlöndum"

„Hjónin er hægt að tengja saman og skoða sem einn aðila. Ef heildarútlán til Jóns Ásgeirs og Ingibjargar eru lögð saman nema heildarskuldir þeirra meira en skuldir Robert Tchenguiz í lok árs 2007, eða rúmum 1,7 milljörðum evra, en við fall námu heildarskuldir þeirra hjóna tæpum 1,3 milljörðum evra, sem er meira en skuldir Ólafs Ólafssonar sem er í 2. sæti. Gervimaður útlönd, þ.e. óþekkt erlent eignarhald, stendur fyrir skuldir að upphæð rúmar 320 milljónir evra í lok árs 2007 og rúmar 290 milljónir evra við fall en það skipar þeim aðilum í 14. og 15. sæti," segir í þessum hluta skýrslunnar.

Í lok september 2008 eru skuldir Björgólfs Guðmundsson í bönkunum 517 milljónir evra, jafnvirði 75 milljarða króna, og skuldir Björgólfs Thors Björgólfssonar 481 milljónir evra, eða um 70 milljarðar króna.

Jón Ásgeir með stærsta fyrirtækjahópinn

Í 9. bindi skýrslunnar eru einnig teknir saman stærstu skuldahópar tengdir einstaklingum. Er þá miðað við að einstaklingur eigi að lágmarki 20% beint og óbeint í fyrirtækjum til að þau falli í hóp viðkomandi. Samkvæmt þessari samantekt trónir Jón Ásgeir Jóhannesson á toppnum í lok árs 2007 með heildarútlán sem nema rúmum 200 milljörðum króna, eða 2,2 milljörðum evra á gengi lok árs 2007. Á eftir honum koma bræðurnir Lýður og Ágúst Guðmundssynir með álíka mikla heildarskuld, með 121 milljarða króna á mann. Fjöldi lögaðila, eða fyrirtækja er tengdust þá Jóni Ásgeiri voru 75, og 27 fyrirtæki sem tengdust Bakkavarar-bræðrum.

Í fjórða sæti yfir stærstu skuldahópa tengda einstaklingum kemur Robert Tchenguiz með 11 fyritæki tengd sér og skuldir upp á 1,2 milljarða evra. Björgólfur Guðmundsson er í 5. sæti með rúman milljarð evra og 52 fyrirtæki honum tengd, Björgólfur Thor Björgólfsson kemur næstur með 846 milljónir og 47 fyrirtæki tengjast honum. Í næstu sætum koma Ólafur Ólafsson (49 fyrirtæki) Pálmi Haraldsson (20 fyrirtæki), Jóhannes Kristinsson (19 fyrirtæki), Magnús Kristinsson (38 fyrirtæki) og í 11. sæti á þessum lista kemur „gervimaður í útlöndum" aftur við sögu, þ.e. óþekktur einstaklingur í útlöndum, með alls 45 milljarða skuldir í bönkunum í lok árs 2007 og tengsl við 372 fyrirtæki í landinu.

Þessa skuldahópa má sjá nánar í töflum 18 og 19 í 9. bindi skýrslunnar, þar sem fjallað er um krosseignatengsl og útlán bankanna til tengdra aðila.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvísjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú höfuðborg Aserbaídsjan og var þeim Jónsa og Grétu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Aliner Expedition Nýskr 3/2008 Hlaðið aukabúnaði
Sólarsella Loftpúðafjöðrun, Nýtt fortjald, grjótgrind, 2 gaskútar, 2 rafgeymar. ...
BÍLASTÆÐAMÁLUN, MALBIKSVIÐGERÐIR
Bílastæðamálun malbiksviðgerðir og véls...
Sjálfskipt Nissan Almera 2001
Til sölu Nissan Almera Luxury árg. 2001, ekin 167 þús., skoðaður 2013, stgr.verð...
OPEL ASTRA ENJOY
Opel Astra Enjoy Nýskr. 4/2007, ekinn 93 þ. km, bensín, 5 g...
 
Kennarasöður
Grunn-/framhaldsskóla
Kennarastöður Grunnskóli...
Atvinnuhúsnæðitil leigu eða sölu
Atvinnuhúsnæði
Atvinnuhúsnæði Til leig...
Starfsmaður í mötuneyti
Önnur störf
Starfsmaður í mötuneyti Morgunblaðið ...
Samkoma
Félagsstarf
Safnaðarheimilið Grens...