Stjórnmálamenn í boðsferðum
Björn Ingi Hrafnsson, fyrir miðju, að baki þeim Bjarna Ármannssyni og Björgólfi Guðmundssyni. mbl.is
Í skýrslu rannsóknarnefndarinnar segir að svo virðist sem íslenskir stjórnmálamenn hafi ekki þegið boðsferðir frá bönkunum í miklum mæli. Þó eru tveir nefndir sérstaklega, þeir Björn Ingi Hrafnsson, fv. borgarfulltrúi og varaþingmaður, og Gísli Marteinn Baldursson borgarfulltrúi, sem fóru í veiði og sátu veislur í boði bankanna.
Þá fór Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, í einkaþotu á vegum Glitnis í golfferð til Skotlands 2007, en Bjarni var á þeim tíma stjórnarformaður N1. Þrír yfirmenn Glitnis á þeim tíma voru í þeirri ferð, m.a. Einar Örn Ólafsson, núverandi forstjóri Skeljungs. Einnig voru í þessar flugferð Hermann Guðmundsson, forstjóri N1, og Hjörleifur Jakobsson, forstjóri Kjalar, sem og eigendur BYGG, þeir Gunnar Þorláksson og Gylfi Héðinsson.
Í skýrslunni er tekið fram að upplýsingar úr farþegalistum með einkaþotum séu mjög ófullkomnar og algengt að á listunum standi „unknown passenger" eða óþekktur farþegi.
Björn Ingi Hrafnsson flaug til London, gisti á Radisson Edwardian hótelinu í byrjun febrúar 2007 og var í veislu á Claridge's Hotel í boði Kaupthing Singer & Friedlander. Björn Ingi veiddi líka í boði Glitnis í Laxá í Leirársveit í júlí sama ár, sem stjórnarformaður Orkuveitunnar.
Gísli Marteinn Baldursson flaug til Rússlands í boði Glitnis, var veislustjóri þar í frægri laxveiðiferð, eins og það er orðað í skýrslunni, og veiddi í ánni Panoi.
Í siðferðiskafla rannsóknarskýrslunnar er farið yfir styrki bankanna til stjórnmálamanna og stjórnmálasamtaka. Yfirlit yfir styrkina eftir bönkum má sjá í 8. bindi skýrslunnar á bls. 164-170.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 13. apríl 2010, Innlent Bankastyrkir í stjórnmálin
- Þriðjudagur, 12. maí 2009, Innlent Enn einn kjörinn borgarfulltrúi mun hætta
- Þriðjudagur, 21. apríl 2009, Innlent Háir styrkir frá Baugi og FL
- Miðvikudagur, 10. mars 2010, Innlent Listi sjálfstæðismanna í Reykjavík kynntur
- Mánudagur, 12. apríl 2010, Innlent Björn Ingi hættir tímabundið
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“







































