„Stórt inn á skömmum tíma, gæti farið á skömmum tíma.“
Af fundarpunktum Seðlabankans með yfirmönnum Landsbankans í maí 2007 má ráða að rætt hafi verið almennt um efnahagsmál, að því er segir í kafla 19 í sjötta bindi skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis (bls. 82-83).
„Mishkinskýrslan gott framtak.“
Einnig kemur fram að rætt hafi verið um Lárus Welding, nýjan bankastjóra Glitnis, sem áður starfaði hjá Landsbankanum.
Haft er eftir Davíð Oddssyni, formanni bankastjórnar Seðlabankans: „Mishkinskýrslan gott framtak.“ Síðan kemur fram að Landsbankinn vilji fá bindiskyldu á erlend innlán fellda niður. Einnig segir að innlánstryggingar hafi verið ræddar.
Segir að Landsbankinn vilji að heildsöluinnlán verði undanþegin innlánstryggingu. Síðan segir: „Þrýsta á þetta áfram, vilja reglugerð í haust.“
Hinn 14. maí 2007 fundaði bankastjórn Seðlabankans með stjórnendum Kaupþings banka hf. Af fundarpunktum Seðlabankans má ráða að rætt hafi verið um íbúðalán í erlendri mynt. Einnig kemur fram að rætt hafi verið um hátt skuldatryggingarálag Kaupþings. Síðan segir að rætt hafi verið um innlán.
Enginn áhugi á að sameinast Glitni
Um það segir í fundarpunktum Seðlabankans: „Gengið vel í Bretlandi og Finnlandi. Sótt í gegnum dótturfélögin en eigum eftir að auka innlán móðurfélagsins. Mest innlán frá fyrirtækjum. Ef Ísland lendir aftur í neikvæðri umræðu gætu mun fleiri lýst áhyggjum (vegna innlánanna).“ Því næst er í fundarpunktunum haft eftir Davíð Oddssyni: „Þurfum að skoða bindiskylduna. Áhyggjur af skuldugustu heimilunum.“
Loks segir í fundarpunktum að rætt hafi verið um sameiningu á bankamarkaði. Haft er eftir Hreiðari Má Sigurðssyni, forstjóra Kaupþings: „Engan áhuga á að sameinast Glitni.“
Davíð Oddsson: Reynum að standa við bakið á bönkunum
Í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins 10. ágúst 2007 var rætt við Davíð Oddsson, formann stjórnar Seðlabanka Íslands. Davíð sagði: „Íslensku bankarnir eru í, eftir því sem að við vitum best, í mjög góðum málum og þeir njóta þess auðvitað að þeir tóku mjög vel til í sínum ranni þegar þeir lentu í ákveðnum erfiðleikum fyrir 16–18 mánuðum síðan. Þannig að þeir eru ekki að lenda í sömu erfiðleikunum og ýmsir bankar og fjármálastofnanir og sjóðir eru að gera núna.“
Aðspurður um þessa frétt við skýrslutöku fyrir rannsóknarnefnd Alþingis sagði Davíð Oddsson: „En menn verða náttúrulega alltaf að hafa í huga að þegar við erum að tala opinberlega og í framhaldi af alls konar svona fullyrðingum erlendis frá [að] við erum auðvitað að reyna að standa við bakið á bönkunum. [...] Við höfðum auðvitað áfram áhyggjur en ég bara man ekki eftir neinum sérstökum kaflaskiptum [þarna],“ segir á bls. 86 í 6. bindi skýrslunnar.






































