Bankahrunið var bönkunum sjálfum að kenna
„Það er ekki þar með sagt að allir sem fara yfir þessa skýrslu séu sammála því sem þar stendur,“ sagði Geir. Hann kveðst hafa svarað nefndinni þegar honum var gefið færi á andmælum, þeim atriðum sem lúta að hugsanlegri vanrækslu af hans hálfu.
„Ég tel ekki að það sé hægt að fella þá sök á mig sem nefndin gerir. Ég færi fyrir því rök í bréfi mínu til nefndarinnar. En ég deili vitanlega ekki við nefndina í hennar niðurstöðu þótt ég hafi aðra skoðun en hún í þeim atriðum,“ sagði Geir.
Hann sagði að á árinu 2008 hefðu menn reynt að gera hið ómögulega, að bjarga bankakerfinu. „Menn vissu það bara ekki fyrr en eftir á að það var ómögulegt og því miður tókst það ekki.“
Geir sagði að eins og kæmi fram í skýrslu nefndarinnar hefðu sennilega verið síðustu forvöð að bjarga bankakerfinu á árinu 2006 en það hefði verið orðið of seint árið 2008.
„Menn gerðu sér ekki grein fyrir því hve bankarnir stóðu á miklum brauðfótum og hvers konar starfsemi þar átti sér stað sem nú er að koma fram í dagsljósið í æ ríkara mæli,“ segir Geir.
Bankarnir voru óábyrgir
„Bankahrunið var ekki íslenskum stjórnvöldum að kenna þótt finna hafi mátt að ýmsu í sambandi við formsatriði á vettvangi ríkisstjórnar og ráðuneyta. Bankahrunið var bönkunum sjálfum að kenna. Þeir voru óábyrgir, þeir gengu á lagið þegar innleiddar voru hér reglur Evrópusambandsins um algjörlega opinn fjármálamarkað og svo nýttu þeir sér það, eins og aðrir bankar, að vextir á fjármálamörkuðum voru lágir. Auðvitað datt engum í hug að þeir peningar sem bankarnir öfluðu færu í jafnóábyrg útlán og raunin virðist hafa orðið.“ agnes@mbl.isInnlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 12. apríl 2010, Innlent Of seint að bjarga bönkunum 2006
- Þriðjudagur, 18. ágúst 2009, Innlent Of seint að bregðast við
- Mánudagur, 12. apríl 2010, Innlent Gat ekki gefið skýringar á aðgerðarleysinu
- Mánudagur, 12. apríl 2010, Innlent Jónas Fr.: Staðan ekki slæm
- Laugardagur, 2. maí 2009, Innlent Amma á Facebook
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“





































