Eigið fé verulega ofmetið
Rannsóknarnefnd Alþingis kemst að þeirri niðurstöðu að eiginfjárhlutfall bankanna þriggja hafi í raun verið verulegra lægra en fram kom í uppgjörum þeirra. Þá er átt við eignir að frádregnum skuldum, að teknu tilliti til sérstakra reglna sem gilda um eigið fé fjármálastofnana.
Bankarnir lánuðu verulegar fjárhæðir til kaupa á hlutabréfum í þeim sjálfum. Þær lánveitingar ollu því að bankarnir báru sjálfir umtalsverða áhættu vegna eigin hlutabréfa. Þetta er skýrt á eftirfarandi hátt í skýrslu nefndarinnar:
„Ef slík markaðsáhætta er orðin veruleg innan banka er komin upp sú staða að ef tap verður í rekstri bankans og hlutabréfaverð lækkar í kjölfarið verður afleiðingin aukið tap vegna þessarar markaðsáhættu hlutabréfa bankans. Þannig er geta bankans til þess að takast á við áföll og tap ekki söm og ef hann bæri enga áhættu vegna eigin hlutabréfa.“
Þá er skýrt út að hver króna sem bankarnir fengu í nýtt hlutafé hafi veitt bönkunum möguleika á því að stækka efnahag sinn um 7-10 krónur, án þess að lækka hlutfallið.
Í ályktunum sínum segir rannsóknarnefnd Alþingis að fjármögnun bankanna hvers á annars hlutabréfum hafi skapað mikla kerfislæga áhættu, sem hafi veikt getu íslenska fjármálakerfisins til að standa af sér þá lausafjárkreppu sem skall á um mitt ár 2007. Þá leiði veigamikil rök til þeirrar niðurstöðu að draga hefði átt lán, sem einvörðungu voru tryggð með veði í eigin hlutabréfum, frá eigin fé fjármálafyrirtækis.Sjá nánar um þetta mál í Morgunblaðinu í dag.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 27. september 2010, Innlent Bankarnir byggðu á sandi
- Laugardagur, 25. september 2010, Innlent Vilja rannsókn á einkavæðingu bankanna
- Þriðjudagur, 13. apríl 2010, Innlent Ábyrgðin bankanna
- Miðvikudagur, 14. apríl 2010, Innlent Grunaðir um að halda verðinu uppi
- Mánudagur, 12. apríl 2010, Innlent Bankarnir réðu túlkun reglna, ekki FME
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“





































