Hafna ávirðingum um vanrækslu og mistök

stækka

Brynjar Gauti

Morgunblaðið eftir Ómar Friðriksson

Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, Árni M. Mathiesen fyrrv. fjármálaráðherra og Björgvin G. Sigurðsson, fyrrv. viðskiptaráðherra, vísa því allir á bug í svörum til rannsóknarnefndarinnar að um vanrækslu af þeirra hálfu hafi verið að ræða.

„Ég tel ekki að orsaka bankahrunsins sé að leita í því sem gerðist á vettvangi íslenskra stjórnvalda síðustu mánuðina fyrir hrunið heldur fyrst og fremst í ákvörðunum bankanna sjálfra mánuðina og misserin á undan og þeirri atburðarás sem þær leiddu til. En að sjálfsögðu höfðu alþjóðlegar markaðsaðstæður mikil áhrif,“ segir Geir H. Haarde í bréfi sínu 24. febrúar sl.

Nánast stanslausar aðgerðir

Geir rekur í ítarlegu máli atburðarásina á árinu 2008 og segir að nánast stanslaust hafi verið í gangi aðgerðir, tilraunir og umleitanir af hálfu opinberra aðila á Íslandi til að styrkja stöðu bankanna og þjóðarbúsins og forðast áföll [...] „eigi að síður var af flestum talið allt fram undir lok september að íslensku bankarnir myndu lifa ástandið af og að ekki kæmi til stórfelldra efnahagsáfalla af þeirra völdum.“

Fengu dökka mynd af stöðunni

Vísar Geir því alfarið bug að hann hafi hvorki látið staðreyna upplýsingar sem fram komu á fundi þriggja ráðherra með bankastjórn Seðlabankans 7. febrúar né látið undirbúa aðgerðir í ljósi þeirra upplýsinga.

Rannsóknarnefndin fjallar ítarlega um þennan fund þar sem Davíð Oddsson, þáverandi formaður bankastjórnar Seðlabankans, dró upp mjög dökka mynd af stöðu og framtíðarhorfum íslensku bankanna, en hann var þá nýkominn af fundi í London.

Í svari Geirs kemur m.a. fram að af hans hálfu hafi verið út frá því gengið að frásögn Davíðs yrði sett í búning minnisblaðs. Svo varð þó ekki. Geir bendir á að á þessum fundi hafi komið fram ýmis sjónarmið ónafngreindra bankamanna og menn ekki verið að öllu leyti sammála. Eðlilegt hefði verið af hálfu bankans að fylgja þessari frásögn eftir með hugmyndum eða tillögum um viðbrögð við þeirri stöðu, sem lýst var sem skoðun hinna erlendu bankamanna. En það var ekki gert.

Hann minnir einnig á að í skýrslu Seðlabankans um fjármálastöðugleika, frá 8. maí 2008, hafi bankinn sagt að fjármálakerfið væri í meginatriðum traust.

Í bréfi Geirs er einnig að finna frásögn af löngum fundi sem hann, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, þáverandi utanríkisráðherra og Árni M. Mathiesen áttu 7. ágúst 2008 um efnahagsmál í ráðherrabústaðnum „með þremur þrautreyndum hagfræðingum sem allir þekktu mjög vel til íslenskra efnahagsmála“. Þótt á þeim fundi hafi vissulega komið fram áhyggjur af fjármálakerfinu og stöðu bankanna hafi ekkert komið fram um að bankahrun væri yfirvofandi.

„Þessir sérfræðingar höfðu m.ö.o. ekki frekar en aðrir upplýsingar um að innviðir bankanna væru fúnari en upplýst hafði verið né gátu þeir spáð fyrir um fárviðrið á alþjóðlegum mörkuðum um haustið.“

Formaður ber ábyrgð á samskiptum við samflokksmenn

Geir svarar þeirri gagnrýni rannsóknarnefndarinnar að hann hafi ekki upplýst viðskiptaráðherra um áhyggjurnar sem fram komu á fundinum 7. febrúar. Vísar hann þar til þeirrar stjórnarfarslegu venju að formenn ríkisstjórnarflokka í samsteypustjórnum beri „í raun ábyrgð á samskiptum og upplýsingastreymi gagnvart samflokksmönnum sínum í ríkisstjórn hvort sem mál koma þar til umræðu síðar eða ekki,“ segir í svarbréfi hans.

„Hvað mig varðar gerði ég mínum samflokksmönnum ýmist grein fyrir málum í samtölum við einstaka ráðherra eða á sameiginlegum fundum ráðherra Sjálfstæðisflokksins, sem haldnir voru vikulega. Ég veit ekki annað en ráðherrar Samfylkingarinnar hafi einnig átt með sér reglulega fundi. Hafði ég enga ástæðu til að draga í efa að upplýsingamiðlun milli utanríkisráðherra og viðskiptaráðherra væri með algerlega eðlilegum hætti og vissi ég að viðskiptaráðherra fylgdist mjög vel með á sínu verkefnasviði,“ segir Geir ennfremur.

Ekki hægt að staðreyna

Í svari Árna M. Mathiesen vísar hann til lagaákvæða og reglna sem sýni að fjármálaráðuneytið fari ekki með framkvæmd laga og reglna um fjármálastarfsemi á Íslandi og eftirliti með henni. „Þannig fæst ekki séð að þau efnisatriði sem tilgreind eru í bréfi nefndarinnar varði fjármálaráðuneytið að neinu leyti,“ segir m.a. í svörum Árna.

Varðandi fund ráðherra með bankastjórn Seðlabankans 7. febrúar segir Árni að hann hafi í sjálfu sér ekki efast um að upplýsingar sem komu þar fram væru réttar. „Hins vegar verður að horfa til þess að þar var á ferð munnleg endursögn formanns bankastjórnar Seðlabankans á viðhorfum hinna ýmsu viðskiptabanka Bretlands og lánshæfismatsfyrirtækja til stöðu Íslands. Var því ekki hægt að staðreyna þessar upplýsingar, t.d. hvort og þá að hvaða marki þessir aðilar voru sammála innbyrðis.“

Hættir sem formaður þingflokks

Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra, tilkynnti í gær að hann hefði ákveðið að stíga til hliðar sem þingflokksformaður Samfylkingarinnar. Hann hefur hins vegar ekki sagt af sér þingmennsku.

Í svörum sínum til rannsóknarnefndarinnar hafnar hann því eindregið að hafa sýnt af sér vanrækslu eða að honum hafi orðið á mistök í embætti ráðherra.

Björgvin segir rannsóknarnefndina ekki afmarka hvaða skyldur hafi hvílt á honum við framkvæmd og eftirlit með lögum og reglum um fjármálastarfsemi. Bréf nefndarinnar svari ekki þessum grundvallarspurningum. Hann segir það ekki hafa verið innan verkahrings viðskiptaráðuneytisins, heldur lagaskyldu annarra stofnana, að krefjast þess að viðskiptabankarnir minnkuðu efnahagsreikning sinn. Þá bendir hann á að forsætisráðherra hafi kosið að hafa samráð við utanríkisráðherra öðrum fremur um framvindu efnahagsmála. Um þetta hafi verið fullt samkomulag og í samræmi við þá hefð sem skapast hafi.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
50 vinsælustu vörurnar í netverslun femin.is
Kynntu þér fjölbreytt úrval í netverslun www.femin.is og yfir 7.000 vöruliði ! ...
Varahlutir í MITSUBISHI PAJERO o.fl.
Eigum notaða varahluti í flesta Mitsubishi bíla svo sem Pajero, L200, Lancer, Ga...
Gasnaglabyssa
Til sölu Hilti naglabyssa. Gasnaglabyssa GX 100. Upplýsingar í síma 8935005 ...
VOLVO S40
Er með til sölu VOLVO S40, keyrður 90.000 km, árgerð 2004, bensín, 2435 cc sla...
 
Auglýsing byggðakvóti

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvó...
Leikskólastjóri við sunnufold
Stjórnunarstörf
Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborg...
15269 sumarhúsverkmenntaskóli akureyrar
Til sölu
Tilboð óskast í s...
Samkoma
Félagsstarf
Samkoma, sunnudag kl. 17 Ken Lock...