Hönd með gullúri kippti honum út

Landsbankamenn koma af fundi í Ráðherrabústaðnum 5. október 2008. stækka

Landsbankamenn koma af fundi í Ráðherrabústaðnum 5. október 2008.

Ráðherrar og hagfræðingur lýstu því í skýrslum fyrir rannsóknarnefnd Alþingis þegar forsvarsmenn Landsbankans reyndu 5. október 2008 að sannfæra stjórnvöld um að enn væri hægt væri að bjarga íslenska bankakerfinu með því að sameina Landsbanka og Glitni.

Við skýrslutöku lýsti Össur Skarphéðinsson, þáverandi iðnaðarráðherra og núverandi utanríkisráðherra, fundinum með þessum orðum:

„[Landsbankamenn] [k]omu að kynna okkur eitthvað, frábært tilboð. Og hann [Björgólfur Thor Björgólfsson] sat þarna í sínum flottu fötum, ofsalegur „seller“, að selja eitthvað sem gekk út á það að þeir áttu að fá Glitni ókeypis og fá alla skapaða hluti og síðan allan gjaldeyrisforðann og eitthvert „guarantee“ til viðbótar.

Og Halldór Kristjánsson sat þarna svona eins og laminn hundur og tók ekki mikið undir þetta. Svo var þessi fundur búinn, Sigurjón var þarna, það voru snúðar á  borðunum, skornir í tvennt, stórir snúðar. Sigurjón er nú munnstór maður og mikill og þegar þeir voru farnir út og hann var einn eftir þá tók hann svona hálfan snúð, tróð honum upp í andlitið á sér og skaut undan snúðnum þessari setningu: Ég hef ekki trú á þessu, ég hef ekki trú á þessu. Þá kom svona hönd  með gullúri og kippti honum út.“

Jón Steinsson, hagfræðingur, sagði nefndinni að hann hefði mætt í  Ráðherrabústaðinn síðdegis og beðið eftir því að fundur með ráðherrum hæfist.  Í millitíðinni hafi bankamenn komið og farið. Jón segir að á meðan biðinni stóð hafi hann heyrt ýmsar sögur og rakti hann eina sem dæmi:

„[...]ein sagan er sú einmitt að Landsbankamennirnir hafi farið inn og lagt eitthvert plan fyrir ríkisstjórnina og að það hafi verið augljóst á látbragði Sigurjóns Árnasonar að hann hafi ekki haft trú á þessu plani og Árni Matt hafi tekið eftir þessu og eftir að fundurinn var að leysast upp hafi Árni Matt komið að máli við Sigurjón og spurt hann eitthvað svona: „Hefurðu trú á þessu?“ Og þá hafi Björgólfur Thor tekið utan um Sigurjón og í rauninni hrint honum út úr herberginu og lokað á nefið á Árna Matt. Þetta var sagan sem ég heyrði.“

Björgvin G. Sigurðsson, þáverandi viðskiptaráðherra, lýsti þessum atburðum með öðrum hætti við skýrslutöku:

„Landsbankamenn voru náttúrulega alltaf að reyna að sannfæra okkur um það [að hægt væri að bjarga Landsbankanum] en svo var það samt svo sérkennilegt að á síðasta fundinum með þeim á sunnudagsmorgninum með Landsbankamönnum, þá voru þarna Björgólfur Thor, Halldór og Sigurjón.  Björgólfur var mjög vígreifur og hérna, svo eru þeir að labba út og allir farnir út nema Sigurjón og þá segir hann svona upp úr eins manns hljóði: Þetta er búið. Og þeir eiginlega kippa honum út og Össur segir: Hvað sagðirðu? Og þá segir  Árni Matt: Nei, leyfðu honum að fara, leyfðu honum að fara. Ég veit ekki hvort  hann sagði þetta óvart en auðvitað vissu þeir, það var að renna upp fyrir þeim líka að þetta væri búið en það var í rauninni bara verið að reyna til þrautar allar leiðir, er hægt að bjarga þeim og hvernig? Kaupþing, eiga þeir að kaupa allt draslið? Þeir vildu kaupa Glitni, töldu sig geta tekið hann yfir og haldið öllu gangandi og – þannig að það var allt rætt, alveg út og suður."

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Lagersalan Kauptúni 3 Garðabæ
Stálvaskar,verð 5000-stk.Opið mánud. til föstud.kl. 13-18 laugard.og sunnud. kl...
Ljósavélar í báta og skip 10 -1000 kw
Útvegum allar gerðir af ljósavélum, Cummins, Perkins, fl,. teg Stamford , leory ...
SANDBLÁSTURFILMUR
Sandblásturfilmur í öllum stærðum og gerðum fyrir heimili og fyrirtæki. Sendið f...
Haraldur Guðni Eiðsson er fertugur í dag
Haraldur verður að heiman á afmælisdaginn. Hann afþakkar blóm og gjafir en biður...
 
Samkoma
Félagsstarf
Sunnudagur27. maí - hv...
Auglýsing byggðakvóti

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvó...
Þjónustufulltrúi.
Skrifstofustörf
Þjónustufulltrúi Fyr...
Hagvangur
Önnur störf
Húsvörður Upplýsingar veitir: Kristín ...