Hvatti forsetann til að segja af sér

Björn Valur Gíslason
Björn Valur Gíslason

Umræðum um skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis verður haldið áfram á Alþingi á morgun, en rætt var um skýrsluna á þingi í allan dag.

Gagnrýndi Björn Valur Gíslason, varaformaður fjárlaganefndar, þátt Ólafs Ragnars Grímssonar forseta Íslands í skýrslunni harðlega í ræðu sinni í kvöld og var hann beðinn að gæta orða sinna. Sagði hann forsetann hafa dásamað útrásarvíkingana allt frá upphafi og hvatti Ólaf Ragnar til að segja af sér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert