Staðsetningin hættuleg

Magnús Tumi segir enn lítið vitað um gosefnin í þessu eldgosi. stækka

Magnús Tumi segir enn lítið vitað um gosefnin í þessu eldgosi.

Gosið sem hófst í Eyjafjallajökli í morgun telst ekki stórt gos þó það sé mun öflugra en gosið sem lauk á Fimmvörðuhálsi í gær. Staðsetning gosins uppi á toppi jökulsins gerir það þó mun hættulegra en stærðin ein gefur til kynna að mati Magnúsar Tuma Guðmundssonar jarðeðlisfræðings.

Hann segir enn ekki hægt að segja til um hvort gosið sé enn að stækka eða fari minnkandi. „Gosið er bara í gangi,“ segir hann „og mælingar benda ekki til að þetta sé stórt gos, þó það sé vissulega mun öflugra en gosið í  Fimmvörðuhálsi sem segja má að hafi verið einskonar forleikur að þessu.“

Telur Magnús Tumi að um fjórðungur af þeim ís sem er á gosstöðinni sé nú farin. „Það er því nægur ís til að það geti komið endurteknar hlaupskvettur á meðan að gosið stendur og það er helsta vandamálið við þetta gos.“ Stöðugt þurfi að vera varðbergi og raunar í mun meira mæli en í flestum þeim eldgosum sem upp hafa komið undanfarin ár og áratugi. „Þarna er bratt fjall, nálægt byggð með jökli á toppnum og það gýs í toppnum. Aðstæður hér eru þess vegna allt öðru vísi en inni í Grímsvötnum. Þar gýs lengst inni í Vatnajökli og þó að það geti komið jökulhlaup niður Skeiðarársandinn þá er enginn byggð í hættu þar.“ Aðstæður nú kalli því á stöðuga vöktun vegna hugsanlegar hlaupa.

Að sögn Magnúsar Tuma er ekki mikið vitað um gosefnin úr nýja gosinu ennþá. „Vísindamenn frá Jarðvísindastofnun munu reyna að afla sýna á morgun og koma þeim í greiningu til Reykjavíkur.“ Það geti þó verið vissum vandkvæðum háð þar sem gjóskan berist nú til austurs og þjóðvegurinn hafi verið rofinn. Vera kunni að vísindamennirnir þurfi á aðstoð Landhelgisgæslunnar til að afla sýnanna.

„Reynist gosefnið svipað og í gosinu 1821-23 þá getur það orðið langvinnt, án þess að ég sé að spá neinu um það,“ segir Magnús Tumi og vonast til að jarðvísindamenn komist einnig með flugvél Landhelgisgæslunnar í námundann við gosstöðvarnar á morgun. „Þegar ekki er bjartviðri er flugvél Landhelgisgæslunnar eina flugvélin sem er búin þeim tækjum að unnt sé að sjá í gegnum ský og átta sig á aðstæðum á gosstöðvum.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Til sölu stór og vel staðsett eignarlóð
Mjög stór og vel staðsett eignarlóð samtals 3,62ha. Lóð númer H-37 í Heklubyggð...
Grand Cherokee Laredo árg. 2007 TILBOÐ 2.100 þús. stgr.
Til sölu Grand Cherokee V6 3,7 sjálfskiptur árg. 2007 ekinn 84 þús.km. Dráttarbe...
Vor í Tungunum - www.eyjasolibudir.is
Falleg sumarhús til leigu um helgar og virka daga. Fallegt umhverfi. Heit laug o...
OPEL CORSA-C
OPEL CORSA-C Verð kr. 470.000, árgerð 2002, 1.199 cc. Akstur 141 þ. km. Bens...
 
Atvinnuhúsnæðitil leigu eða sölu
Atvinnuhúsnæði
Atvinnuhúsnæði Til leig...
Styrkir til eflingar starfsmenntunar
Tilkynningar
Styrkir til eflingar starfsmennt...
Íslandsbanki
Önnur störf
Tækifæri fyrir öfluga sérfræðinga ...
Kynning skipulagsmála í rangárþingi eystra

Kynning skipulagstillöguí Rangárþin...