Vigdís heiðursdoktor
Vigdís Finnbogadóttir verður sæmd heiðursdoktorsnafnbót hjá Deild erlendra tungumála, bókmennta og málvísinda við Hugvísindasvið Háskóla Íslands á morgun á áttræðisafmæli Vigdísar. Athöfnin hefst kl. 11 í Hátíðasal Háskóla Íslands og er öllum opin.
Ásdís R. Magnúsdóttir, deildarforseti, stýrir athöfninni og til máls taka þau Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, Páll Skúlason, prófessor og fyrrverandi rektor, Jón Torfi Jónasson, forseti Menntavísindasviðs, Ástráður Eysteinsson, forseti Hugvísindasviðs og Auður Hauksdóttir, forstöðumaður Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum. Vigdís Finnbogadóttir ávarpar samkomuna og kór Kársnesskóla syngur
Þú siglir alltaf til sama lands
Hátíðardagskrá verður í Háskólabíói. Húsið verður opnað kl. 15:30 og boðið verður upp á kaffi. Dagskráin, sem er öllum opin á meðan húsrúm leyfir, hefst kl. 16.30. Útvarpað og sjónvarpað verður beint frá athöfninni og því verður lokað inn í salinn kl. 16.20.
Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, setur dagskrána kl. 16:30 og í kjölfarið munu Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra og Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, ávarpa Vigdísi, en Háskóli Íslands, stjórnvöld og Reykjavíkurborg standa að afmælishátíðinni ásamt fjölda félagsamtaka sem tengjast starfsvettvangi og hugðarefnum Vigdísar.
Þá tekur við dagskrá í myndum, tali og tónum undir listrænni stjórn Kolbrúnar Halldórsdóttur, leikstjóra. Dagskráin er afmælisgjöf til Vigdísar frá listamönnum og þeim sem að hátíðardagskránni standa, en henni lýkur laust fyrir kl. 18 með ávarpi afmælisbarnsins.
Allir sem vilja heiðra Vigdísi á þessum merkisdegi hennar eru hvattir til að mæta á afmælishátíðina.
Varðveisla framtíðar
Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur gengst fyrir alþjóðlegri ráðstefnu 15.-17 apríl um sjálfbærni tungumáls, menningar og náttúru, en á henni verður fjallað um bókmenntir, tungumál, menningu og náttúru frá ýmsum sjónarhornum.
Setningarathöfn fer fram í Hátíðasal Háskóla Íslands kl. 18:30–19:30
Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, setur ráðstefnuna.
Martti Ahtisaari, fv. forseti Finnlands og friðarverðlaunahafi Nóbels, flytur opnunarfyrirlestur.
Aðrir lykilfyrirlesarar verða:
- Irina Bokova, aðalframkvæmdastjóri Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna - UNESCO
- Bernard Comrie, forstöðumaður málvísindadeildar Max Planck stofnunarinnar í Leipzig
- Claire Kramsch, prófessor og forstöðumaður tungumálamiðstöðvar Berkeley-háskóla í Kaliforníu
- Páll Skúlason, prófessor og fyrrverandi rektor Háskóla Íslands
Lykilfyrirlestrar eru öllum opnir og ekki þarf að skrá sig til þátttöku í þeim.
Ráðstefnunni lýkur með fyrirlestri Irinu Bokova laugardaginn 17. apríl kl. 18:00-18:40 í Hátíðasal Háskóla Íslands.





































