Atvinnuleysi 9,3% í mars

Mikið atvinnuleysi er í byggingariðnaði stækka

Mikið atvinnuleysi er í byggingariðnaði Ernir Eyjólfsson

Skráð atvinnuleysi í mars 2010 var 9,3% eða að meðaltali 15.059 manns og breytist atvinnuleysi lítið frá febrúar, fjölgar um 33 manns að meðaltali.  Á sama tíma á árinu 2009 var atvinnuleysi 8,9% eða 14.546 að meðaltali.

11,2% karla á höfuðborgarsvæðinu án vinnu

Atvinnuleysið er 9,9% á höfuðborgarsvæðinu en 8,1% á landsbyggðinni. Á höfuðborgarsvæðinu er 11,2% karla án atvinnu. Alls eru 8,3% kvenna á höfuðborgarsvæðinu án vinnu en 7,7% kvenna á landsbyggðinni eru án atvinnu.

Mest er atvinnuleysið á Suðurnesjum 14,9% en minnst á Vestfjörðum 3,2%. Atvinnuleysið er 10,2% meðal karla og 8,1% meðal kvenna, eða óbreytt frá fyrra mánuði, að því er fram kemur í frétt á vef Vinnumálastofnunar.

Alls voru 16.482 atvinnulausir í lok mars. Þeir sem voru atvinnulausir að fullu voru hins vegar 12.855, af þeim voru 3.155 í einhvers konar úrræðum á vegum Vinnumálastofnunar, auk þess sem mikill fjöldi fer í ráðgjafarviðtöl, á kynningarfundi og í vinnumiðlun. Fækkun atvinnulausra í lok mars mánaðar frá lokum febrúar nam 92, en 130 færri karlar voru á skrá en 38 fleiri konur. Á landsbyggðinni fækkar um 50 en um 42 á höfuðborgarsvæðinu.

Fjöldi þeirra sem hafa verið atvinnulausir lengur en 6 mánuði er nú 8.533 og fjölgar um 666 frá lokum febrúar og er um 52% þeirra sem eru á atvinnuleysisskrá í lok mars. Þeim sem verið hafa atvinnulausir í meira en eitt ár fjölgar úr 4.365 í lok febrúar í 4.601 í lok mars.

Alls voru 3.147 á aldrinum 16‐24 ára atvinnulausir í lok mars en 3.104 í lok febrúar eða um 19% allra atvinnulausra í mars.

Alls voru 2.421 erlendir ríkisborgarar án atvinnu í lok mars, þar af 1.428 Pólverjar eða um 59% þeirra útlendinga sem voru á skrá í lok mánaðarins. Langflestir atvinnulausra erlendra ríkisborgara voru starfandi í byggingariðnaði eða 749.

Samtals voru 2.633 af þeim sem voru skráðir atvinnulausir í lok mars í hlutastörfum, þ.e. þeir sem eru í reglubundnum hlutastörfum eða með tilfallandi eða tímabundið starf á síðasta skráningardegi í mars. Þetta eru um 16% af þeim sem voru skráðir atvinnulausir í lok mars. Af þeim 2.633 sem voru í hlutastörfum í lok mars voru 1.573 einstaklingar sem sóttu um atvinnuleysisbætur skv. lögum um minnkað starfshlutfall frá því í nóvember 2008. Í mars voru 367 sjálfstætt starfandi skráðir á atvinnuleysisskrá vegna samdráttar í rekstri skv. áður nefndum lögum. Þeim fækkar um 390 frá febrúar þegar þeir voru 757.

Spá 9-9,4% atvinnuleysi í apríl

Yfirleitt batnar atvinnuástandið frá mars til apríl. Í fyrra var undantekning þar á en þá jókst atvinnuleysið lítils háttar. Þannig jókst atvinnuleysi um 1,8% frá mars til apríl á árinu 2009. Vinnumálastofnun áætlar að atvinnuleysið í apríl breytist lítið og verði á bilinu 9%‐9,4%. Í fyrra var atvinnuleysið 9,1% í apríl.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Gasgrill
Til sölu gasgrill með hitaplötu. Tilboð. Uppl. í síma 863-7512...
VW TOUAREG V6 TDI
Tilboð 4.200 þ. kr. Ásett 4.600 þ. kr., árg.2005, akst. 110.000 km. Álfelgur, au...
NISSAN PRIMERA 2002. Sjálfskiptur og nýskoðaður og ÓDÝR!
Til sölu Nissan Primera árg. 2002, ekinn 149 þúsund km. Bíllinn er í toppstandi,...
Sumarhús til leigu - Reykholt Bisk.
Bústaður til leigu við Reykholt í Biskupstungum. Laus þessa viku (Hvítasunnuhelg...
 
Atvinnuhúsnæðitil leigu eða sölu
Atvinnuhúsnæði
Atvinnuhúsnæði Til leig...
Styrkir til eflingar starfsmenntunar
Tilkynningar
Styrkir til eflingar starfsmennt...
Íslandsbanki
Önnur störf
Tækifæri fyrir öfluga sérfræðinga ...
Kynning skipulagsmála í rangárþingi eystra

Kynning skipulagstillöguí Rangárþin...