Björgólfur Thor gerir athugasemd við frétt

Björgólfur Thor Björgólfsson. stækka

Björgólfur Thor Björgólfsson. mbl.is/Kristinn

Björgólfur Thor Björgólfsson hefur sent frá sér athugasemd vegna fréttar sem birt er í Fréttablaðinu í dag. Segir hann að öllu sé snúið á hvolf í fréttinni en í henni kemur fram að  Björgólfsfeðgar hafi fengið hundrað milljarða lán mánuði fyrir hrunið. 

Athugasemd Björgólfs Thors

„„Öllu er snúið á hvolf  í frétt Fréttablaðsins í gær, þar sem fullyrt er í fyrirsögn að „Björgólfsfeðgar [hafi fengið] hundrað milljarða lán mánuði fyrir hrunið“.  Í tveimur tilvikum er því haldið fram að tekið hafi verið lán, þegar svo var ekki. Í öðru tilvikinu var keypt krafa af Landsbankanum og í hinu fékk Björgólfur Thor greidda upp kröfu sem hann átti og lagði það fé inn í Straum til að styrkja bankann. Til viðbótar er lán vegna Actavis dregið inn í umfjöllunina, en það lán er í skilum og verður greitt upp að fullu.

Fréttablaðið heldur því fram að bankastjórn Landsbankans hafi samþykkt hátt lán til eignarhaldsfélagsins Samsonar í september 2008. Margoft hefur verið bent á, að ekki var um nýja lánveitingu að ræða. Landsbankinn átti háa kröfu á Eimskip vegna láns til móðurfélags ferðaþjónustufyrirtækisins XL Leisure Group.  Samson keypti þá kröfu í viðleitni sinni að styðja við rekstur bankans.  Hér er því um það að ræða að eigendur bankans leggja fram eignir til að styðja við bankann á erfiðum tímum, en ekki nýja lánveitingu eins og gefið er í skyn. Síðar gengu þessi kaup til baka og Landsbankinn því eins settur og fyrir kaupin. 

Þá er því haldið fram að Björgólfur Thor hafi fengið lán frá Straumi í desember 2008. Þetta er alrangt.  Hið rétta er að Björgólfur Thor fékk greitt til baka lán sem hann hafði veitt Novator One, sjóði í eigu Straums. Þetta fé lagði hann strax aftur til bankans, til að styrkja eiginfjárgrunn hans. Ljóst er að það fé er að mestu glatað.

Actavis lán verður gert upp að fullu

Því hefur verið haldið mjög á lofti og Fréttablaðið gerir það einnig í umfjöllun sinni, að lán til Björgólfs Thors vegna Actavis hafi verið tekið örfáum dögum fyrir fall Landsbankans. Staðreyndin er hins vegar sú, að dregið var á lánið í áföngum frá apríl fram í september 2008, eða sex mánuðum áður en bankakerfið hrundi. Lánið var nauðsynlegt til að tryggja áframhaldandi rekstur Actavis, en bæði Björgólfur Thor og Landsbankinn höfðu mikla hagsmuni  af að svo yrði. Fyrir láninu voru því fullkomlega eðlilegar viðskiptalegar forsendur. Tryggingar fyrir láninu voru traustar, m.a. veð í Actavis.  Lánið er í skilum og verður gert upp að fullu.

Vegna umfjöllunar um lánamál Björgólfs Thors Björgólfssonar í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis vinnur hann nú að samantekt um þau mál sem hann hyggst birta opinberlega innan tíðar. Hann var ekki  kallaður fyrir rannsóknarnefndina og fékk ekki tækifæri til að svara fyrir sig eða gera grein fyrir sínum málum þar.

Björgólfur Thor  vinnur nú að uppgjöri skulda sinna og mun gera betri grein fyrir því síðar.  Eins og fram kom í grein hans í Fréttablaðinu á miðvikudag er ljóst að þótt miklar eignir hans renni strax til lánardrottna muni hann jafnframt starfa í þeirra þágu um ókomin ár, þar til hann hefur að fullu gert upp við þá," segir í yfirlýsingu sem Björgólfur Thor hefur sent á mbl.is.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
TEXASBORGARAR
Heimagerðir hamborgarar og franskar úr 100% gæðahráe...
Þæg hross
Er með nokkra þæga hesta til sölu sem rúlla töltið, einnig nokkur trippi uppl. s...
Tjaldvagnaleiga
www.123.is/tjaldvagnaleiga...
Íbúð óskast sem næst Lyngby - Kaupmannahöfn
Erum ungt bar með lítið barn og bráðvantar íbúð til leigu. Erum að fara í DTU sk...
 
Sýslumaðurinn í reykjavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
12834 stofnstígur - reykjavíkurborg

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Intellecta
Stjórnunarstörf
Bæjarstjóri Sveitarfélagsins Garði La...