Ekið á barn

Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni. mbl.is/Jakob

Sjö ára gömul stúlka varð fyrir bíl í Eskihlíð í Reykjavík nú á fimmta tímanum. Tveir sjúkrabílar voru sendir á staðinn og er búið að flytja stúlkuna á slysadeild. Að sögn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins fór betur en á horfðist.

Stúlkan, sem var hjóli, lenti undir bifreiðinni. En vegfarendur komu henni til aðstoðar. Nánari upplýsingar um meiðsl hennar liggja ekki fyrir að svo stöddu.

Tilkynning barst klukkan 16:36.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert