Smöluðu búfé í öskufalli
Bændur og björgunarsveitarmenn smöluðu búfé í Meðallandi í gærkvöldi, en þar gerði mikið öskufall, svo mikið að ekki sá á milli stika á veginum. Mikið öskufall var í Álftaveri í morgun og „skuggsýnt“ að sögn Sigurlaugar Sigurðardóttur bónda á Herjólfsstöðum.
Sigurlaug segir að á venjulegum degi ætti að vera orðið bjart úti, en það sé enn mjög dimmt og sjáist ekki á milli húsa.
Ekkert öskufall var við Herjólfsstaði í gærkvöldi, en annað er uppi á tengingum í dag.
Mikið öskufall var við bæinn Syðra-Steinsmýri í gærkvöldi, en Ingunn Magnúsdóttir, bóndi í Syðra-Steinsmýri, segir að ekki sé öskufall þessa stundina.
„Það kemur ekkert niður núna, en það var talsver mikið öskufall í gærkvöldi. Það er grá hula yfir öllu. Bílarnir eru gráir,“ sagði Ingunn.
Öskufallið byrjaði um kl. 8 í gærkvöldi og stóð fram eftir nóttu. Allsterkur vindur er af vestri og ber öskuna til austurs.
Allar skepnur eru á húsi á Syðra-Steinsmýri, en búfé var úti á sumum bæjum. Björgunarsveitarmenn og bændur gripu til þess ráðs í gærkvöldi að smala kindum og hrossum og koma þeim í hús.
„Við erum róleg yfir þessu í augnablikinu, en það var talsverð viðbrigði í gær þegar tók að snjóa ösku. Við höfum aldrei upplifað svona áður. Maður sá ekki milli vegstika.“
Öskufall getur valdið fólki óþægindum og skepnur geta borið skaða af því. Það getur einnig leitt til þess að bílar drepi á sér.
Ekki er hægt að greina að neitt sé að draga úr gosinu. Strókurinn dökknar öðru hverju og því fylgir öskufall. Vindar blása öskunni til austurs. Strókurinn nær 6-8 km hæð.
Fólk á 20 bæjum næst gosinu fengu ekki að vera heima í nótt, en bændur mega sinna gegningu nú í morgunsárið.
Bloggað um fréttina
-
Þórarinn Þ Gíslason NÚ ER ÞAÐ SVART OG Í FULLRI ALVÖRU SVART FYRIR ... -
S i g u r ð u r Sigurðarson Kort af Eyjafjallajökli, gossprunga og flóð
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 15. apríl 2010, Innlent Gott að þetta komi í skömmtum
- Miðvikudagur, 14. apríl 2010, Innlent Öskufall berst austur yfir
- Laugardagur, 17. apríl 2010, Innlent Gígarnir stækka og þrýstingur minnkar
- Mánudagur, 19. apríl 2010, Innlent Þykkt öskulag við Seljavelli
- Laugardagur, 1. maí 2010, Innlent Nestið bíður í frystikistunni
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“







































