Gígarnir hafa stækkað

Aska frá Eyjafjallajökli sést á þessari mynd af Evrópu sem …
Aska frá Eyjafjallajökli sést á þessari mynd af Evrópu sem NASA hefur sent frá sér. Reuters

Flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF lenti í Reykjavík kl. 18:30 í kvöld Voru aðstæður á gossvæðinu kannaðar og gögnum safnað með ratsjár- og hitamyndum. Kom í ljós að litlar breytingar hafa orðið á svæðinu, aðrar en þær að ásjóna gíganna í eldstöðinni er orðin afmynduð. Gígarnir hafa stækkað talsvert.

Einnig eru komin ný göt í Gígjökul þar sem vatn hefur runnið undir honum og fellt „þakið“. Lónið neðan Gígjökuls er horfið eins og sást í gær, og engin fyrirstaða fyrir hlaupin úr honum eftir. Við athugun á framburði Markarfljóts kom í ljós að hann leitar að mestu til austurs. Nær hann lengst á 019°25´V og um 2 sjómílur. frá strönd.

Tilkynning barst frá lögreglunni kl. 19:35 um öskufall við Vík í Mýrdal. Frekari fregnir bárust klukkan að ganga níu um samfellt öskufall 40 km í austur frá Vík. Var þá ákveðið að loka þjóðveginum austan við Vík sem og veginum um Mýrdalssand.
 
Tilkynnt var um aukna virkni á gosstað og miklar eldingar kl. 21:11. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert