Illugi fer í leyfi frá þingstörfum
Illugi Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur ákveðið að taka leyfi frá þingstörfum og mun senda forseta Alþingis bréf þess efnis fyrir upphaf þingfundar á mánudaginn kemur. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Illuga en ástæðan er stjórnarseta hans í peningamarkaðssjóðum sem nú eru til rannsóknar hjá sérstökum saksóknara.
Yfirlýsing Illuga
„Ég hef ákveðið að taka leyfi frá þingstörfum og mun ég senda forseta Alþingis bréf þess efnis fyrir upphaf þingfundar á mánudaginn kemur.
Sú er ástæða ákvörðunar minnar, að rannsóknarnefnd Alþingis hefur vísað málum peningamarkaðssjóða til athugunar hjá sérstökum saksóknara.
Ég hef fengið hóp sérfræðinga til þess að lesa yfir þann kafla skýrslunnar sem snýr að störfum þeirrar stjórnar sem ég átti sæti í. Niðurstaða þeirrar skoðunar er sú að í skýrslunni sé ekki að finna dæmi um brot sem eru á ábyrgð stjórnarinnar, en benda megi á atriði sem betur hefðu mátt fara við rekstur sjóðanna, eins og áður hefur komið fram í opinberri umræðu.
Mat mitt er að sú óvissa sem myndaðist við þá ákvörðun nefndarinnar að vísa með almennum hætti málum peningamarkaðssjóðanna allra til sérstaks saksóknara, sé til þess fallin að draga úr tiltrú almennings á störfum mínum á Alþingi. Jafnframt kann þessi óvissa að skaða Sjálfstæðisflokkinn í þeirri miklu vinnu sem framundan er við endurreisn íslensks efnahagslífs og samfélags. Við það get ég ekki unað.
Ég treysti því að embætti sérstaks saksóknara ljúki sem fyrst skoðun sinni og að þessari óvissu linni. Ég er ekki í vafa um að niðurstaða þeirrar skoðunar verði jákvæð og gangi það eftir mun ég í kjölfarið taka aftur sæti á Alþingi."
Bloggað um fréttina
-
Gísli Foster Hjartarson Gott hjá Illuga -
Haraldur Haraldsson Illugi fer í leyfi frá þingstörfum/ hárrétt ákvörðun !!!! -
Sigurjón Sveinsson Eftirsjá af Illuga -
Páll Vilhjálmsson Þorgerður Katrín næst á dagskrá -
Friðrik Friðriksson Af hverju alltaf tímabundið? -
Baldur Hermannsson Maður kemur í manns stað -
Þorsteinn Siglaugsson Hvert stefnum við? -
Hörður B Hjartarson Aldrei fór þó svo -
Þórarinn Þ Gíslason TVEIR TIL HLIÐAR,, EN MIKLU FLEIRI EIGA AÐ SJÁ SÓMA ... -
Jón Ingi Cæsarsson Þetta mjakast. 6-7 eftir. -
Hreinn Sigurðsson Vísukorn -
Axel Jóhann Axelsson Illugi gerir það eina rétta -
Ólafur Ingi Hrólfsson Ákvörðun Illuga. -
Sigríður Laufey Einarsdóttir Enginn má undan líta -
Halldór Halldórsson Eftirfarandi þingmenn víki á meðan umfjöllun stendur: -
Stefán Friðrik Stefánsson Rétt ákvörðun Illuga - Þorgerður á að segja af sér
Innlent »
- Iðnaðarmaður ræsti brunaboða
- Búðaþjófur ógnaði starfsmanni
- Börn grétu vegna útigangsmanna
- Fangar reyna oft að ná í fíkniefni
- Slökkt á meðan Kolaportið er opið
- Skjálftahrina við Grímsey
- Öskureið út í Pál Óskar
- Fleiri vilja aukið íbúalýðræði
- „Stærstu verðlaunin eru heima“
- Afþökkuðu fund í forsætisráðuneyti
- Óttast uppsögn
- Játaði sprengjumálið
- Ný fiðrildategund á Íslandi
- „Mjög hrottafengin árás“
- Ráðist á mann á áttræðisaldri
- Hass og árás á leigubílstjóra
- Viðskotaillur og vildi ekki hjálp
- Gestgjafinn varð æfur
- Maður stunginn í Hafnarfirði
- Hrun í ruslinu frá hruni
- 112-dagurinn er í dag
- Hafa gert hugtakið merkingarlaust
- Fá 10 þúsund kr. fyrir skinnið
- Hálka víða um land
- Of ungir inni á Kónginum
- Opið á skíðasvæðum norðan og austan
- Óbreyttur dagafjöldi á grásleppu
- Vilja starfshóp um atvinnumálin
- Bjartviðri austanvert
- Fengu lán úr sjóðum
Föstudagur, 10.2.2012
- Vandi stjórnarinnar gerður að vanda fjórflokksins
- Ökumenn í vanda vegna hálku
- Hestar sluppu eftir bílveltu
- Nokkrir skjálftar í kvöld
- Snjóar í höfuðborginni
- Vilja breyta skipan á höfuðborgarsvæðinu
- Fljótsdalshérað vann Hveragerði
- Æfa í þröngu, köldu og leku húsnæði
- Vel á annað þúsund á Bessastöðum
- Akureyrarstofa óánægð með Alþingi
- Fíkniefni ætluð fanga fundust
- Meirihluti vill kosningar í vor
- Gáleysi að fara upp lausan stiga
- Stuðningsmenn Sigurðar Árna boða fund
- Miklaborg hreinsuð af ásökunum
- Karl á áttræðisaldri í haldi
- Frystir með kvöldinu
- Handtekinn vegna sprengjumáls
- Náð samkomulagi um vaxtabætur
- Hnífstungumaður áfram í gæsluvarðhaldi
- Á fimmta tug umsókna um starf
-
Keppt í hugviti
- Greiddi barni fyrir vændi
Innlend málefni
- Hallgrímur SI fórst undan ströndum Noregs
- Landsdómur
- Bæjarstjórnarmeirihluti sprunginn í Kópavogi
- Baldur Guðlaugsson - dómsmál
- Ólga innan VG
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 16. apríl 2010, Innlent Illugi færði fram sterk rök
- Laugardagur, 17. apríl 2010, Innlent Bjarni: Allt of hart gengið að Þorgerði
- Laugardagur, 12. júní 2010, Innlent Einlægur vilji þingmanna að klára mál heimilanna
- Föstudagur, 13. mars 2009, Innlent Stuðningsmenn Guðlaugs segja hann hafa forystu
- Laugardagur, 17. apríl 2010, Innlent Þorgerður stígur til hliðar
-
Whitney Houston látin
-
Fréttaflutningur aðeins dropi í hafið
-
Tekið á móti Suu Kyi sem rokkstjörnu
-
Veður hamlar aðgerðum á strandstað
-
Íranar fagna byltingarafmæli
-
Rómarborg snæviþakin
-
Adele í viðtali við 60 mínútur
-
Ingvar: Við verðum að vinna síðustu þrjá





































