„Fólkið má ekki kvíða morgundeginum“

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra flaug með jarðvísindamönnum í Gæsluvélinni í gær. stækka

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra flaug með jarðvísindamönnum í Gæsluvélinni í gær. Kristinn Ingvarsson

Morgunblaðið eftir Sigurð Boga Sævarsson, Ingibjörgu Rósu Björnsdóttur og Sigmund Sigurgeirsson

Dregið hefur úr gosvirkninni í Eyjafjallajökli og í gær hvarf gosstrókurinn af radar sem þýðir að hann nær ekki þriggja kílómetra hæð. Erfitt er, segja jarðvísindamenn, að spá um hvort þetta er tímabundið eða hvort gosið á eftir að færast í aukana á ný. Ekki sást vel til fjallsins í dag vegna skýja. Ekki var öskufall undir Eyjafjöllum í gær.

„Gosvirknin hefur verið minni í dag en var og öskufallið sömuleiðis. Á sama tíma hefur gosóróinn verið meiri, eða heldur aukist, og við vitum ekki alveg hvernig á að túlka það. Það er ljóst að það er miklu minna öskufall og miklu minna í gangi en við vitum ekki hvort er einfaldlega farið að draga úr gosinu eða hvort þetta er tímabundin minnkun á virkni. Ég vænti þess að myndin skýrist þegar flogið verður yfir gosstöðvarnar,“ sagði Magnús Tumi Guðmundsson jarðeðlisfræðingur í samtali við Morgunblaðið á ellefta tímanum í gærkvöldi. Hann var þá staddur á Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum að skoða öskuna og ummerki eftir hlaupið sem kom fyrsta daginn.

„Ólafur og hans fólk er náttúrulega bara hetjur og gaman að hitta þau og sjá og heyra af þeirra reynslu,“ sagði Magnús Tumi.

Björgunarsveitir aðstoða bændur

Tugir björgunarsveitamanna voru á vaktinni á Suðurlandi í gær. Varðstaða við leiðir sem eru lokaðar og aðstoð við bændur, til dæmis við smölun og að moka ösku af húsþökum, voru helstu verkefni dagsins. „Aðstoð og hjálparstörf í eldgosunum tveimur að undanförnu eru einhver umfangsmestu verkefni sem björgunarsveitirnar hafa sinnt um langt skeið,“ segir Ólöf Snæhólm Baldursdóttir, upplýsingafulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar.

Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra var á Suðurlandi í gær og kynnti sér vinnubrögð almannavarna í grennd við gosstöðvarnar í Eyjafjallajökli. Ráðherra fundaði einnig með almannavarnanefnd Rangárvallasýslu og Vestur-Skaftafellssýslu og ræddi við íbúa á áhrifasvæði eldgossins. Hún sagðist í samtali við Morgunblaðið vera ánægð að sjá viðbrögð fólksins á svæðinu og það æðruleysi sem það sýndi á erfiðum tímum.

„Rauði krossinn vinnur hér mikilvægt starf gagnvart andlegri heilsu fólks enda er mikilvægt að það finni stuðning. Fólkið má ekki kvíða morgundeginum,“ sagði Ragna. Hún lofaði starf björgunarsveita og lögreglu. Ýmislegt hefði komið í ljós á undanförnum dögum sem mætti læra af hvað snertir viðbúnaðarkerfi sem unnið er með þegar svona atburðir verða.

Björgunarsveitarmenn úr Borgarfirði sem margir eru úr bændastétt fóru í gær á sveitabæi undir Eyjafjöllum þar sem þeir aðstoðuðu við tilfallandi verk. Þeir fylgdu einnig dýralæknum og forðagæslumönnum sem fóru á sveitabæi til að athuga með ástand búpenings.

Ástand skepna ótrúlega gott

„Eins og fréttirnar voru þá var öskufallið líkast því sem undir Eyjafjöllum rigndi sementi. Ástand skepna virðist eigi að síður vera ótrúlega gott miðað við aðstæður. Að vísu slæ ég þann varnagla að sjúkdómseinkenni geti komið fram á síðari stigum, svo sem öndunarfærasjúkdómar,“ segir Halldór Runólfsson yfirdýralæknir. Hann ítrekar mikilvægi þess að menn taki allan búpening á hús. Í mörgum tilvikum geti þar þó verið óhægt um vik, til dæmis hjá hrossabændum, sem margir hverjir séu með mikið stóð.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Ungu Evrópu dreift til ungs fólks

15:14 „Mikilvægt er að vanmeta ekki þátt ungmenna í þeirri umræðu sem nú stendur yfir um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu,“ segir í fréttatilkynningu frá Ungum Evrópusinnum. Meira »
Brian Ferry á tónleikum

Brian Ferry lendir

15:10 Söngvarinn Brian Ferry lendir í Keflavík nú síðdegis. Að sögn Steinþórs Helga Arnsteinssonar dvelst Ferry hér fram á þriðjudag og hlakkar mikið til að sækja landið heim. Meira »

Evróvisjón með viðbættu tísti

Svona mun skjárinn líta út hjá þeim sem eru með myndlykil frá Vodafone og stilla ...
14:35 Þeir Evróvisjónáhorfendur sem vilja sjá skoðanir annarra Íslendinga á frammistöðu keppenda geta í kvöld stillt á sérstaka sjónvarpsrás, þar sem tíst-straumur birtist með útsendingu Ríkisútvarpsins. Meira »

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

Umferð á Vesturlandsvegi
13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.
12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »

Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað

Blíðviðri á Egilsstöðum
14:24 Milt og hlýtt veður er um austanvert landið. Hvassara og bleyta á Vestfjörðum. Rigningu er spáð um mestallt land í kvöld en lægir yfir nóttina og birtir til á morgun. Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

Jón Bjarnason alþingismaður
12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »

Þarf meiri tíma til að finna lausn

Í Fossvogskirkjugarði.
10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Bangsi fer með í Græna herbergið

Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.
09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Lántakendur varaðir við

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...
05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Athugasemdir við Rússa

Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.
05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Yndislegur HRFÍ Maltese hvolpur til sölu
7 mánaða gamall og með ættbók frá HRFÍ. Foreldrar eru Alþjóða- og íslenskir meis...
2-3 herb.íbúð óskast til kaups
Óska eftir 2-3h. íbúð á Reykjavíkur sv. vinsamlegast sendið staðs. og verð á net...
TOYOTA LAND CRUISER 100 VX, 2004
Til sölu "Gullmoli" aðeins ekinn 87Þ. km. einn með öllu. Dísel Uppl. í síma 899...
Burðarpokar og burðarsjöl www.hondihond.is
Burðarsjöl og burðarpokar í miklu úrvali. Henta börnum frá fæðingu til þriggj...
 
Deiliskipulag á grundartanga

Deiliskipulag á Grundartanga Austur...
12836 fellahverfi - útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Samauglýsing ríkiskaup
Tilboð - útboð
* Nýtt í augl...
Framkvæmdastjóri
Stjórnunarstörf
Norræni verkefnaútflutningssjóðurinn (No...