Kemst ekki heim frá London
Lydia Amimo Henrysdóttir frá Hveragerði hefur verið föst í London frá því á fimmtudaginn var. Ekkert flug hefur verið vegna eldgossins. Rax / Ragnar Axelsson
„Mér líður illa og ég hef verið grátandi,“ sagði Lydia Amimo Henrysdóttir frá Hveragerði. Hún hefur ekki komist heim frá London frá því á fimmtudag í síðustu viku vegna eldgossins. Lydia segist vera orðin þreytt á óvissunni. Hún átti að mæta til vinnu á Landspítalanum í dag en varð að afboða sig.
Lydia kvaðst hafa farið til London á mánudag í síðustu viku og ætlaði hún að fljúga aftur heim á fimmtudaginn var. Þegar hún mætti á flugvöllinn var henni sagt að ekkert yrði af flugi til Íslands vegna eldgossins í Eyjafjallajökli.
Starfsmaður á flugvellinum sagði henni að hún skyldi ekki fara aftur inn í London heldur fá inni á hóteli nálægt flugvellinum og koma aftur á flugvöllinn á föstudagsmorgun.
„Ég kom á flugvöllinn klukkan tíu um morguninn en þá var ekkert flug heldur. Ég er búin að bíða hér síðan og hringja stöðugt í Iceland Express,“ sagði Lydia. Henni var gefin von um að það yrði flogið í gær en ekkert varð af því. Lydia kvaðst hafa spurst fyrir um flug í dag en fengið sömu svör.
„Ég er að læra að verða sjúkraliði og átti að byrja að vinna á Landspítalanum í dag. Ég varð að hringja og láta vita að ég kæmist ekki,“ sagði Lydia.
Hún á að gangast undir próf í sjúkraliðanáminu í næstu viku. Lydia kvaðst ekki hafa tekið skólabækurnar með sér í ferðina til London sem aðeins átti að taka þrjá daga. Hún hefur því ekki getað nýtt tímann til að undirbúa sig fyrir prófin. Lydia kvaðst vona að hún kæmist sem fyrst aftur heim til Íslands.
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 18. nóvember 2009, Innlent Obama á frænku í Hveragerði
- Mánudagur, 19. apríl 2010, Innlent Víðtækar truflanir á flugi
- Föstudagur, 12. febrúar 2010, Innlent Þjónusta í rúma öld er á enda
- Fimmtudagur, 5. nóvember 2009, Innlent Fjarveran á eðlilegar skýringar
- Þriðjudagur, 2. febrúar 2010, Innlent Andstaða við Húnavallaleið
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“



































