„Verstu morgnar sem ég hef lifað“
„Tveir ömurlegust morgnar í mínu lífi voru þegar Hekla byrjaði að gjósa og svo núna þegar gosið byrjaði í Eyjafjallajökli,“ segir Þórður Tómasson, safnvörður í Skógum undir Eyjafjöllum. Mikið öskufall er undir Eyjafjöllum.
„Það er mjög dimmt og ömurlegt út að líta. Vindáttin er þannig að þetta kemur beint yfir okkur frá eldstöðinni,“ sagði Þórður. Spá um öskufall bendir til að öskufall verði undir Eyjafjöllum í allan dag.
„Það er afskaplega dapurt að vera í þessu. Það er ekki hægt að segja annað. Þó að taugakerfið sé í sæmilegu lagi þá líður engum vel undir þessu og enginn veit um áframhaldið.“
Þórður sagði að um tveggja cm öskulag hefði verið á Skógum áður en öskufallið hófst í nótt. „Það var bleytudrulla hér í gær, þannig að ef maður gekk um úti þá kom þykk leðja neðan á skó.“Þórður sagði að það væri ekki gott aðgengi að húsum á byggðasafninu í Skógum. Ráðast þyrfti í mikla hreinsun áður en hægt yrði að hleypa fólki að húsunum. „Ég hef alltaf verið bjartsýnn og trúi að það rætist úr þessu. Maður glatar því ekki,“ sagði Þórður þegar hann var spurður um hvernig honum litist á sumarið, en safnið á Skógum er eitt bestsótta safn á landinu.
Þórður sagði að lítil aska hefði borist inn í húsin. Vel hefði verið gegnið frá hurðum og gluggum.
Þórður verður 89 ára gamall síðar í þessum mánuði. Hann man því vel eftir Heklugosinu árið 1947.
„Ég man ákaflega vel eftir Heklugosinu 1947. Mitt fyrsta verk þegar ég vaknaði kl. 6:30 um morguninn var að stökkva út í hagann og koma hrossum í hús. Þá átti hver einasti bóndi undir Eyjafjöllum hús yfir hrossin sín og þótti sjálfsagt að hýsa þau yfir veturinn. Það stóð heima að þegar ég kom heim að bænum þá byrjaði askan að falla og það varð svarta myrkur. Öskufallið stóð hins vegar bara í um það bil einn klukkutíma. Við fengum ekki öskufall eftir það. Askan sem féll var stórgerður vikur og ekkert lík því sem nú er að falla.“
Öskufallið undir Eyjafjöllum vegna gossins í Eyjafjallajökli hefur staðið með hléum í nokkra sólarhringa.
Bloggað um fréttina
-
Jón Baldur L'Orange ,,Réttlætinu einu skaltu framfylgja" -
Gunnar Th. Gunnarsson Viðlagasjóður -
Jens Guð Áríðandi upplýsingar um svefn bænda -
Birna M Fólkið undir jöklinum... -
Haraldur Haraldsson „Verstu morgnar sem ég hef lifað“ !!!!!
Innlent »
- Selur fylgist með skútunum
- Ráðgjöf veitt á Atvinnutorgi
- Þremur sagt upp hjá Becromal
- Vaxandi hríðarveður á Vestfjörðum og Norðurlandi
- Reglur ræddar í Hafnarfirði
- Rán framið á Akureyri
- WOW air notar Airbus-vélar
- Skoði betur kaflann um forsetann
- Draga hækkun til baka
- Gagnrýnir skamman fyrirvara
- Klára málið í næstu viku
- Segir rangt farið með málsatvik
- Börn og unglingar í óhamingjugildru
- Afgreiðsla ekki í samræmi við lög
- Baðst afsökunar fyrir 12 árum
-
Hundarnir finna dópið strax
- Ummerki um olíu frá Júratímabilinu
- Gerir alvarlegar athugasemdir
- D-vítamínbætt mjólk á markað
- Telja neytendur eiga betri rétt
- Unnur Brá: Eina lausnin?
- Tæplega helmingur ók of hratt
- Umgekkst vændiskonur í opinberum ferðum
- Vatnsleki vegna ræktunar
- „Ég er komin með nóg“
- Allt að 25% verðmunur
- „Pawel virðist eitthvað misskilja ferlið“
- Perlan góður kostur fyrir safn
- Með kannabisgræðlinga í bíl
- Rammaáætlunin tilbúin á næstu dögum
- Efla þarf rannsóknir á höfunum
- Bað hana að leyna bréfunum
- Málið var kært, en fellt niður
- Óvíst um fordæmisgildi
- Farþegum með Norrænu fækkaði
- Undir áhrifum á ótryggðum bíl
- Ólafur Ingi: Fagstétt útrýmt?
- Ný stjórn Röskvu
- Innkalla rjómasprautu
- Geir Jón gefur kost á sér
- Má gera athugasemdir í næsta blaði
- Kærir Snorra til lögreglu
- Hvessir undir Eyjafjöllum
- Jón Baldvin biðst afsökunar á bréfi
- 5,5 laxar í þúsund tonnum makríls
- Stöðvarhúslóð í Bjarnarflagi könnuð
- Brotist inn í Húsaskóla
- Þvottavélin lokaði hurðinni
- Borgarstarfsmenn ósáttari
- Ekkert samráð um frumvarpið
- Ferðamannastraumur til Akureyrar
- Heimsmeistari kvenna í skák keppir hér á landi
- Vindorka könnuð og kortlögð
- Virðingarleysi við vinnu allra
- Vestan stormur við suðurströndina í kvöld
Miðvikudagur, 22.2.2012
- Forstjóra FME sagt upp störfum
- Stjórnlagaráð
- Umfjöllun í Nýju lífi um bréf Jóns Baldvins Hannibalssonar
- Fjárlagafrumvarp 2011
- Grunnskólakennari fordæmir samkynhneigð
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 17. apríl 2010, Innlent „Eins og í hryllingsmynd“
- Fimmtudagur, 6. maí 2010, Innlent Þrifið á Skógum
- Laugardagur, 10. júlí 2010, Innlent Mikil stemmning á goslokaknalli
- Fimmtudagur, 25. mars 2010, Innlent Fellið gæti heitið Hrunafell
- Laugardagur, 15. maí 2010, Innlent Öskufok undir Eyjafjöllum
-
Leita enn að líkum um borð
-
Hundarnir finna dópið strax
-
Umferðamiðstöð sprengd í Peshawar
-
Færir Advania forystu?
-
Fangaverðir hjálpuðu föngum að flýja
-
Fundu lík fimm ára stúlku
-
Talinn hafa skotið bekkjarsystur sína
-
Kristrún: Eigum séns á að komast í úrslitakeppnina






































