Flúga til fimm Evrópuborga

stækka

Reuters

Icelandair mun í dag fljúga fimm flug til fjögurra Evrópuborga og tvö flug til Bandaríkjanna. Félagið segir, að röskun flugs Icelandair hafi haft áhrif á 20 þúsund farþega en tekist hafi að flúga um helming áætlunar frá því eldgosið hófst í Eyjafjallajökli síðasta miðvikudag.

Dagana 15.-20. apríl var samkvæmt áætlun Icelandair gert ráð fyrir að fljúga 136 flug. Þess í stað hefur Icelandair flogið 76 flug, eða sem svarar 56% af áætlun félagsins.

Alls hefur þessi röskun snert 20 þúsund farþega, hér á landi og erlendis sem áttu bókað flug þessa daga. Rúmur helmingur þeirra hefur komist í flug, annað hvort í sérstök aukaflug eða flug samkvæmt áætlun. Fjölmargir hafa frestað ferðum sínum eða hætt við, og aðrir eru í biðstöðu, sumir enn fastir fjarri heimahögum.

Flug til og frá Bandaríkjunum hefur verið með eðlilegum hætti, en Evrópuflug hefur farið mjög úr skorðum. Miklu hefur bjargað að á föstudag 16. apríl var unnt að fljúga 3 aukaflug til Glasgow og sunnudaginn 18. apríl var flogið fimm sinnum til Þrándheims í Noregi. Ekkert hefur hinsvegar verið unnt að fljúga til helstu áfangastaða Icelandair, þ.e. Kaupmannahafnar og London.

„Verkefni okkar undanfarna daga hefur falist í því að leita allra leiða til þess að halda uppi flugstarfsemi milli Íslands og umheimsins og  við höfum gripið öll þau tækifæri sem hafa gefist, m.a. með sérstökum aukaflugum til staða eins og Þrándheims og Glasgow, sem opnast hafa," segir Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair, í tilkynningu.

„Þau flug fylltust strax og þau voru sett upp og við fundum fyrir miklu þakklæti farþega, þó þeir væru ekki að fljúga á sinn áfangastað. Sérfræðingar í stjórnstöð Icelandair skoða stöðugt alla slíka valkosti því við vitum að margir hafa þurft að bíða lengi. Við höfum flugvélar okkar og starfsfólk í viðbragðsstöðu, við förum að ítrustu öryggiskröfum og um leið og yfirvöld gefa sínar heimildir þá förum við af stað til okkar áfangastaða, eða annarra flugvalla sem hugsanlega opnast fyrr."

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Ungu Evrópu dreift til ungs fólks

15:14 „Mikilvægt er að vanmeta ekki þátt ungmenna í þeirri umræðu sem nú stendur yfir um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu,“ segir í fréttatilkynningu frá Ungum Evrópusinnum. Meira »
Brian Ferry á tónleikum

Brian Ferry lendir

15:10 Söngvarinn Brian Ferry lendir í Keflavík nú síðdegis. Að sögn Steinþórs Helga Arnsteinssonar dvelst Ferry hér fram á þriðjudag og hlakkar mikið til að sækja landið heim. Meira »

Evróvisjón með viðbættu tísti

Svona mun skjárinn líta út hjá þeim sem eru með myndlykil frá Vodafone og stilla ...
14:35 Þeir Evróvisjónáhorfendur sem vilja sjá skoðanir annarra Íslendinga á frammistöðu keppenda geta í kvöld stillt á sérstaka sjónvarpsrás, þar sem tíst-straumur birtist með útsendingu Ríkisútvarpsins. Meira »

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

Umferð á Vesturlandsvegi
13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.
12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »

Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað

Blíðviðri á Egilsstöðum
14:24 Milt og hlýtt veður er um austanvert landið. Hvassara og bleyta á Vestfjörðum. Rigningu er spáð um mestallt land í kvöld en lægir yfir nóttina og birtir til á morgun. Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

Jón Bjarnason alþingismaður
12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »

Þarf meiri tíma til að finna lausn

Í Fossvogskirkjugarði.
10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Bangsi fer með í Græna herbergið

Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.
09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Lántakendur varaðir við

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...
05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Athugasemdir við Rússa

Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.
05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Ormar í veiðina frá Óþekktarormum
Nú er maðkur í mysunni og ormar til sölu! Úrvals laxaormar feitir og vænir á ...
Óska eftir Dell 2950 þjóni ódýrt
Óska eftir Dell 2950 netþjóni eða sambærilegu. vinsamlegast sendi upplýsingar á ...
Natuzzi hornsófi til sölu
Flöskugrænn Natuzzi leðursófi. 2+horn+2. Verð 80 þús. kr. Sími 844 4615 eða ragn...
HÓPFERÐABÍLAR
HÓPFERÐABÍLAR TIL LEIGU með eða án bílstjóra. --------16 manna-------- --------9...
 
Starfsleyfisauglýsing
Tilkynningar
Mynd af auglýsingu ...
Administrative assistant
Sérfræðistörf
Icelandic Institute for Intelligent Mac...
Auglýsing byggðakvóti

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvó...
Skólastjóri hrafnatilsskóla
Sérfræðistörf
Mynd af auglýsingu ...