Icelandair aflýsir flugi til London

Sérstakt aukaflug verður flogið til Edinborgar.
Sérstakt aukaflug verður flogið til Edinborgar. Halldór Kolbeins

Icelandair hefur aflýst tveimur áætluðum flugum félagsins til London í dag, 20. apríl.  Flogið verður hins vegar aukaflug til Edinborgar í Skotlandi og er brottför flugsins frá Keflavíkurflugvelli kl. 13.00 og brottför frá Edinborg til Íslands síðdegis klukkan 17.10 að staðartíma.

Sem fyrr er sérstök athygli vakin á því að breytingar geta orðið með stuttum fyrirvara, og eru farþegar hvattir til þess að fylgjast vel með fréttum, komu- og brottfarartímum á textavarpi og vefmiðlum og upplýsingum á icelandair.is áður en farið er til Keflavíkurflugvallar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert