Mótmælt við heimili þingmanns

Hópur mótmælenda safnaðist saman við heimili Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur, þingmanns Samfylkingarinnar, um klukkan 20 í kvöld. Lögreglubifreið fór á staðinn og að sögn varðstjóra varð engin uppákoma.

Einnig var mótmælt við heimili Steinunnar í gær. Ekki liggur fyrir hversu margir mótmæltu við heimili hennar nú í kvöld, en þeir voru um 20 í gær.

Þeir krefjast þess að Steinunn segi af sér þingmennsku vegna styrkjamála.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert