Aukinn viðbúnaður á Akureyrarflugvelli
Þyrla Landhelgisgæslunnar var í nótt flutt til Akureyrar vegna yfirvofandi lokunar Reykjavíkurflugvallar. mbl.is/Árni Sæberg
Slökkvilið Akureyrar mun auka viðbúnað sinn á Akureyrarflugvelli frá og með í dag vegna lokunar Keflavíkur- og Reykjavíkurflugvallar. Keflavíkurflugvöllur lokaðist klukkan 6 í morgun vegna öskuskýs frá Eyjafjallajökli en bæði Icelandair og Iceland Express flýttu morgunflugum sínum vegna þessa. Reykjavíkurflugvöllur er einnig lokaður.
Þar sem óhagstæðar vindáttir eru taldar geta borið ösku frá gosstöðvunum í Eyjafjallajökli til Reykjavíkur og Keflavíkur er búist við að millilandaflug fari um Akureyrarflugvöll í staðinn.
Vegna þessa bætir slökkvilið Akureyrar við slökkvibifreið á flugvöllinum ásamt mannskap meðan þetta ástand varir. Að sögn Þorbjörns Haraldssonar slökkviliðsstjóra samræma liðið og Flugstoðir öryggi vallarins í takt við þær breytingar og áætlanir sem eru í sífeldri endurskoðun miðað við veðurspár.
Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, sagði að gert væri ráð fyrir að lokun Kéflavíkurflugvallar hefði áhrif á 40 áætlunarflug í dag. Þar af yrðu 24 flug felld niður, 12 nýjum komið á vegna lokunarinnar og fjórum ferðum flýtt til að tryggja að flugvélar kæmust í loftið áður en flugumferð yrði takmörkuð.
Óttast var að gjóskan myndi einnig setja verulegt strik í reikninginn hjá Iceland Express (IE). Matthías Imsland, forstjóri IE, sagði að flugi til London frá Keflavík yrði flýtt og einnig flugi frá Alicante til að hægt yrði að fara fyrr til Kaupmannahafnar en áætlað hafði verið. Verið var að skoða hvernig leyst yrði úr Berlínarflugi. Þá var í skoðun að beina flugvélum IE á leið frá Kaupmannahöfn og London til Akureyrar.
Aðspurður hvað röskunin hefði áhrif á ferðir margra farþega Icelandair taldi Guðjón að þeir væru ríflega 4.000. Matthías Imsland taldi að niðurfelling á flugi til og frá Berlín myndi hafa áhrif á ferðir 300 farþega.
Hvað snertir beint fjárhagslegt tjón félaganna af völdum gossins taldi Guðjón óhætt að áætla að það nálgaðist milljarð hjá Icelandair.
Að sögn Matthíasar nemur tjón Iceland Express nú þegar 150-200 milljónum. Hann óttaðist að tugir milljóna bættust við ef tafir yrðu á flugi fram á laugardag.
Á Íslandi eru fjórir alþjóðaflugvellir, í Keflavík, Reykjavík, á Akureyri og Egilsstöðum.
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 25. maí 2011, Innlent Millilandaflug hafið
- Föstudagur, 23. apríl 2010, Innlent Farþegaþotur á Akureyri
- Þriðjudagur, 18. maí 2010, Innlent Keflavíkurflugvöllur opinn
- Laugardagur, 8. maí 2010, Innlent Þéttbókað á Akureyrarflugvelli
- Fimmtudagur, 5. ágúst 2010, Innlent Flugvélum beint til Reykjavíkur
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































